Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Síða 96

Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Síða 96
SKAPAR ÆFINGIN MEISTARANN? koma til móts við væntingar kennaranema og hins vegar þarf að aðstoða þá við að tengja almenna kennslufræði við kennslufræði greina. Slíkt fyrirkomulag dregur hugsanlega úr því óöryggi sem kom fram í fyrri æfingakennslunni og styrkir tengsl fræða og framkvæmda. Fjórða vísbending rannsóknarinnar rennir stoðum undir þá þörf að setja æfingakennslunni skýrari markmið. Þau markmið verða að vera öllum ljós, þeim sem skipuleggja æfingakennsluna, æfingakennurum og kennaraefnum. Er til dæm- is til þess ætlast að í skólunum séu sett upp tilraunaverkstæði fyrir kennaraefnin í hálfan mánuð, þar sem þau geti prófað sig áfram með nýjar hugmyndir sem æfingakennarinn hefur ef til vill aldrei reynt sjálfur? Eða er ætlast til þess að kennaraneminn gangi inn í það fyrirkomulag sem ríkir og skipulagt hefur verið af skólanum? Skapa þarf vettvang fyrir umræðu og samvinnu hlutaðeigandi um markmið æfingakennslunnar og fyrirkomulag hennar. Fimmta vísbending sem þessi rannsókn gefur er að það þurfi ekki að fara saman að vera góður og traustur kennari og að vera góður æfingakennari. Bjóða þarf áhugasömum kennurum að þjálfa sig sérstaklega til þess starfs þannig að smám saman verði myndaður sérstakur faghópur æfingakennara sem sinnir æfingakennslu. Kynna þarf æfingakennurum það námsefni sem kennaraefnin eru að fást við hverju sinni og helstu kenningar sem nýjar kunna að vera af nálinni svo þeir geti veitt kennaranemum hvatningu og þor til að takast á við nýjar hugmyndir. Þá yrðu æfingakennarar þjálfaðir í að skoða eigin kennslu og í að leiðbeina kenn- araefnum svo að kennarar hafi faglegan og persónulegan styrk til að gera hvort tveggja í senn, gefa og þiggja. Meta þarf árangur samvinnu þeirra sem standa að kennaranáminu og æfinga- kennara. Með öðrum orðum, áríðandi er að kanna hvort slík samvinna skilar sér í markvissari og meðvitaðri æfingakennslu og um leið betri kennaramenntun, þannig að við getum tekið undir hið fornkveðna að æfingin skapi meistarann. Heimildir Birna Helgadóttir. 1996. Viðhorf nema og mat þeirra á náminu [Skýrsla.] (umsjón Gerður G. Óskarsdóttir). Reykjavík, Háskóli íslands. Calderhead, J. og M. Robson. 1991. Images of teaching. Student teachers' early conceptions of classroom practice. Teaching and Teacher Education 7,l:l-8. Cope, E. 1971. School Experience in Teacher Education, Bristol, University of Bristol. Cruickshank, D. R. og W. D. Amarline. 1986. Field experiences in teacher education. Considerations and recommendations. Journal ofTeacher Education 36,3:34-40. Damm, S. 1979. Institutional training expectations of student teachers. Their rela- tionship to performance and wastage. M. Hewittson (ritstj.). Research into Tea- cher Education, ERDC Report no. 19. Canberra, Australian Goverment Publishing Service. 94
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.