Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 130

Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 130
HUGLEIÐING UM STÆRÐFRÆÐILEGAN UNDIRBÚNING GRUNNSKÓLAKENNARA Einatt virðist vanmetið, hve langan tíma tekur að öðlast sjálfstraust í stærðfræði. Langflestir þurfa mörg ár til að ná stærðfræðilegum þroska. Jafnvel nemendur sem hafa verið tiltölulega farsælir í stærðfræðinámi í grunn- og framhaldsskóla geta átt erfitt með að meta eigin kunnáttu. Enda er munur á því að geta fundið rétt svar og því að vera viss um að svarið sé rétt. Er 5-2 = 10 ? Er það víst? Enn vandasamara getur verið, að skilja og meta stærðfræðilega hugsun annarra. Stundum segjast kennarar helst hafa náð tökum á tilteknum efnisatriðum við að þurfa að kenna þau, en stærðfræðikennari sem ekki hefur fræðilegt sjálfstraust mun sennilega ekki kunna góð skil á viðfangsefninu, jafnvel eftir að hafa kennt það. Ef það er svo, eins og margt bendir til, að í kennaranám komi að stórum hluta fólk sem hefur takmarkaðan áhuga á stærðfræði og jafnvel neikvæða reynslu af stærðfræðinámi og ef stærðfræði er svona lítið sinnt í kennaranámi, þá blasir við okkur vítahringur þar sem grunnskólanemar fá ófullnægjandi stærðfræðikennslu og verða að sama skapi áhugalitlir um stærðfræði, en seinna meir verða sumir þeirra grunnskólakennarar. Það er hvorki auðvelt né fljótlegt að rjúfa slíkan vítahring, en það er skoðun mín, að það verði helst gert með því að efla stærðfræðnám verðandi grunnskólakennara. Það er með öðrum orðum í kennaramenntunarstofnunum sem verður að taka á þessum vanda. Eg held það hafi lítið sem ekkert upp á sig, að kenna grunn- eða framhaldsskólum um slakan undirbúning fyrir kennaranám. Það er fyrst og fremst í sjálfri kennaramenntunarstofnuninni sem verður að setja hin rauðu strik. Jafnframt verður að aðstoða kennaraefni miklu meira við stærðfræðilegan undir- búning sinn. Eg tel, að kennaranemar séu margir stærðfræðilega ósjálfbjarga, en ég held að það yrði til lítillar farsældar, eitt og sér, að leggja þyngri stærðfræðipróf fyrir þá. Ég held að réttara væri að koma til móts við hina fjölmörgu sem hafa áhuga á kennslu í grunnskóla en hafa ófullnægjandi stærðfræðilegar forsendur til þess. A hinn bóginn má ekki vera feimnismál að gera raunverulegar kröfur til grunnskóla- kennara. Um leið og við aðstoðum fleiri við að styrkja stöðu sína í stærðfræði, verð- um við sennilega að fella fleiri, sem ekki standast kröfur. Lítum aftur á stærðfræði í samanburði við aðrar námsgreinar. Meðal sérkenna stærðfræðinnar eru skýrar, en jafnframt þröngar, forsendur, ótvíræðar ályktanir, samfelld uppbygging og sérhæft táknmál. Vinnulag í stærðfræðinámi er frábrugðið vinnulagi í félagsvísindanámi. Það er ekki laust við, að skipulag kennaranáms virð- ist stundum eingöngu taka mið af félagsgreinunum. Þá byggist námið á lestri, verk- efnavinnu, hópvinnu, umræðum, vettvangsathugunum og fleiru í þessu felst ekki sá andi sem á við í stærðfræðinámi. Þá á að hugsa og skilja og hugsa svo aftur til að skilja betur. Ef við nú gefum okkur að kennaraneminn sé heldur illa staddur með tilliti til vinnubragða í stærðfræðinámi og þurfi dálítinn tíma til að koma sér úr sporunum, þá er hætt við að ekki verði ýkja mikið eftir af örfáum stærðfræðináms- einingum þegar hann loks er kominn á skrið. I Kennaraháskóla íslands er stærðfræði einnig í boði sem valgrein, eins og fyrr segir. í henni felst um tólf eininga nám, bæði í hefðbundnum stærðfræðigreinum: talnafræði, rúmfræði, algebru og stærðfræðigreiningu, auk námskeiða sem kalla má að séu á sviði stærðfræðimenntunar. Fjöldi nemenda, sem velur sér stærðfræði í Kennaraháskólanum, er yfirleitt á milli tíu og tuttugu af rúmlega hundrað manna 128
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.