Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Page 136
HLJÓÐFÆRANÁM FYRIR ALLA _______________________________________________
SKIPAN TÓNLISTARNÁMS
Hér á eftir er dregið saman hvernig tónlistarnámi er háttað á Húsavík:
- Kennsla priggja til fimm ára barna í leikskólanum, almennt tónlistarnám
og tónlistaruppeldi, 6-10 börn í hóp, 30 mínútur á viku. Daglega er
unnið með tónlist inni á deildum í umsjá leikskólakennara.
- Sex ára börn. Almenn tónlistarkennsla í tónmennt grunnskólans í beinu
framhaldi af því sem gert var á leikskólanum, heilar bekkjardeildir.
- Sjö og átta ára börn. Unnið samhliða í tónmennt og hópkennslu tónlistar-
skólans. Börnin byrja að læra á blokkflautu, þau læra nótnalestur og
fleiri atriði sem eru kjarni í hljóðfæranámi. í tónmenntatímum er unnið
með heilar bekkjardeildir í hópkennslu Tónlistarskólans, fjögur til sjö
börn í hóp.
- Níu ára börn fá að velja að læra á eitthvað af þeim hljóðfærum sem kennt
er á í Tónlistarskóla Húsavíkur. Kennslan fer fram í þriggja manna hópi.
Öll undirstaða til að læra á hljóðfæri á að vera fyrir hendi. Allan tímann
er hið þekkta notað til að kynna hið óþekkta. Alltaf er unnið með sam-
þætt kennsluefni.
- Tíu ára börnum stendur til boða að hefja hljóðfæranám í Tónlistarskóla
Húsavíkur með „hefðbundnum" hætti og möguleikar á fjölbreyttum
verkefnum í almennri tónmenntakennslu Borgarhólsskóla. Nemendur
þurfa sjálfir að greiða skólagjöld Tónlistarskólans eins og þau eru hverju
sinni.
STAÐAN AÐ ÞREMUR ÁRUM LIÐNUM -
HUGMYNDIR UM FRAMHALD
Með verkefninu Hljóðfæranám fyrir alla hefur tekist að ryðja braut og skapa ákveðinn
farveg fyrir samstarf uppeldisstofnana sem verða reknar af sama aðila nú eftir að
flutningur gunnskóla til sveitarfélaga er orðinn að veruleika. Með tilkomu nýrra
leikskólalaga og flutnings leikskóla frá félagsmálaráðuneyti til menntamálaráðu-
neytis heyrir fagleg yfirstjórn þessara stofnana undir sama ráðuneyti. Að margra
mati er lagaleg staða íslenskra tónlistarskóla nokkuð óljós í skólakerfinu. Með verk-
efninu og gerð sameiginlegrar námskrár þessara þriggja stofnana er gerð tilraun til
að skýra línurnar og afmarka betur hlutverk hverrar stofnunar fyrir sig hvað varðar
sameiginlegt verkefni þeirra sem er að sjá um tónlistaruppeldi barna. Takist það
hlýtur það að vera til mikilla hagsbóta fyrir alla aðila hvort heldur það eru börnin,
heimilin, rekstraraðilar eða þeir sem fara með faglega yfirstjórn þessara mála.
Sá árangur sem náðst hefur með verkefninu hvað varðar hópkennslu á hljóð-
færi er forsenda þess að hljóðfæranám getur núna komið sem viðbót inn á sam-
fellda stundaskrá barnanna, þ.e.a.s. hljóðfæranám yngstu barnanna fer nú fram á
skólatíma. Þetta auðveldar að koma á samfelldum skóladegi barnanna og fellur vel
að þeim hugmyndum að koma á heilsdagsskóla. Með því að koma hljóðfæranám-
inu inn í samfelldan skóladag er líka unnt að komast hjá því að það rekist á við
134