Búnaðarrit - 01.06.1966, Page 247
NAUTGRIPASÝNINGAIi
553
mun, en áhrifa þeirra gætir nú ekki. Hlaut engin kýr I.
verðlaun af 54 sýndum, þótt margar ágætlega gerðar
mjólkurkýr hafi verið sýndar.
I Svínavatnshreppi voru skoðaðar kýr á 2 bæjum utan
sýninga.
í A.-Húnavalnssýslu liefur lílill árangur orðið í kyn-
bótastarfinu undanfarin ár og áhugi fyrir nautgriparækt
og skýrslulialdi ininnkað að mun. Er ljóst, að ekki má
slaka á í kynhótamálunum, ef ekki á að verða algjör
stöðnun í ræktun kúastofnsins. Það var mikil lyftistöng
fyrir nautgriparæktina í Húnavatns- og Skagaf jarðarsýsl-
um, er Búf járræktarstöðin á Blönduósi hóf starfsemi sína
vorið 1963, og mun hún móta stefnu í kynbótamálunum
og ræktun kúastofnsins í þessum sýslum um ókomin ár.
En bændur sjálfir verða að vera virkir þátllakendur í
þeirri starfsemi, ekki aðeins með því að skipta við kvn-
bótastöðina, liehlur einnig með auknu skýrsluhahli, því
að það er grundvöllurinn undir öllu kynhótastarfi.
Skagaf jarSarsýsla og ÓlafsfjörSur
Á þessu svæði voru sýningar haldnar 16.—24. júní.
/ Skar&shreppi voru aðeins skoðaðar kýr frá einum bæ,
enda lítið um skýrsluliald og fáar kýr í hreppnum.
Fékkst Jiví ekkert yfirlit yfir kúastofninn.
Nd. líf. Sta&arhrepps. Sýndar voru margar mjólkur-
legar kýr og vel hyggðar. Af 62 sýndum hlutu 8 I. verð-
laun. Fimm af 1. verðlauna kúnum voru dætur Brands
N35, en alls voru sýndar 18 dætur hans, og hlutu 8 þeirra
II. verðlaun, 2 III. verðlaun og 3 engin. Þær hafa góða
malabyggingu og fótstöðu, stór júgur, en ekki vel upp-
borin. Eru þær mjólkurlagnar og hafa háa mjólkurfitu,
og er fullvíst, að Brandur hefur hætt kúastofninn á þeim
bæjum, þar sem hann var notaður. Má fullyrða, að liann