Búnaðarrit - 01.06.1966, Page 254
BÚNAÐARRIT
560
vel sótt og mun betri en verifii hefur áður. Hlutu nú 35
kýr I. verðlaun, og af þeim voru 7 frá Víðigerði, 6 frá
Merkigili og 5 frá Grund og einnig Vöglum. Fjórar I.
verðlauna kýrnar frá Merkigili eru komnar þangað frá
Hvammi, en þar hafa lengi verið afurðasamir gripir.
Þetta nautgriparæktarfélag liefur starfað vel og stóð
framarlega í ræktunarmálunum í Eyjafirði. En áhuginn
liefur verið í öldudal um nokkurt skeið, og Jiyrfti al-
mennt skýrsluhald að verða útbreiddara, ef félagið á
ekki að dragast aftur lir. Einnig þyrftu samskiptin við
sæðingarstöðina að Lundi að verða meiri.
Nf. Saurbœjarhrepps. Samstarf í nautgriparæktarmál-
um hefur ekki verið eins almennt í hreppnum og annars
staðar á starfssvæði S. IV. E. Skýrsluliald hefur ekki verið
nægilega almennt og skipti við sæðingarstöðina of lítil.
A nokkrum bæjum eru þó mjög álitlegar og afurðasamar
kýr. Af 146 sýndum kúm hlutu nú 40 I. verðlaun. Sjö
þeirra voru í eigu Jóns Kristjánssonar í Fellshlíð, 10 í
eigu félagshúsins á Möðruvöllum, 7 í eigu Hreins Krist-
jánssonar í Hrísliól og 7 í eigu Eiríks Björnssonar á Arn-
arfelli. A sýningunni var úthlutað farandhorni þeim,
seni sýndi álitlegastan kúahópinn. Hlaut að þessu
sinni Hreinn Kristjánsson í Hríshól hornið til varðveizlu,
en af 13 sýndum kúm hans hlutu 7 I. og 6 II. verð-
laun. Ein kýr kom til álita að hljóta heiðursverðlaun, en
það var Búkolla 10 Jóns Kristjánssonar í Fellslilíð. Sýnd-
ar voru með Búkollu 4 dætur liennar, en engin þeirra
lilaut I. verðlaun. Sjálf hlaut Búkolla ekki |iá viður-
kenningu vegna of lítillar fitu í mjólkinni. Hún er dóttir
Kols N1 og Gránu 61, Jódísarstöðum. Meðalafurðir lienn-
ar í 10.7 ár eru 4343 kg mjólkur með 3.58% feiti eða
15548 fe.
Tvci naut í einkaeign hlutu II. verðlaun, Neisti N147
og Ægir N170.
Nf. Öngulsstafiahrepps. Þetta félag liefur starfað með
mjög góðum árangri, og er skýrsluhald úthreitt og al-