Freyr - 01.01.1955, Blaðsíða 299
SVEINN SKÚLASON:
UPP TIL SELJA
Hjá norskum dalabændum eru víðast
landþrengsli til baga, og til úrbóta hafa
þeir því sel upp til fjalla og heiða, fyrir
gripina yfir hásumarið um 3 mánuði, frá
því í miðjum júní til miðs september.
Þau býli, sem við ferðalangarnir heim-
sóttum í Guðbrandsdalnum, voru í um 300
m. hæð yfir sjó, en selin frá hinum sömu
jörðum voru í um 800—850 m. hæð og
lögðum við af stað frá bænum Kvam til
að skoða þau.
Það var um hádegið er við settumst upp
í farkost okkar, í logni og steikjandi sólar-
hita, já, en sá hiti, og ferðinni heitið upp
til selja á hálendið, norðaustur af dalnum.
Farkosturinn fór hægt og hægt upp hlíð-
ina, því leiðin var brött og seinfarin, þótt
vegurinn væri lagður eftir hjöllum, sillum
og sneiðingum, til ]>ess að hann væri sem
hægastur fyrir vegfarandann. Þrátt fyrir
það lá við, að leiðin væri farkosti okkar of-
raun með þennan farm.
Á leið okkar upp hlíðina, gaf að líta yfir
hinn dásamlega Guðbrandsdal, með allri
sinni tign og fegurð.
Fljótið fullt af tiinbri, sem var á leið til
sögunarverksmiðjunnar og líktust þessir
stóru timburflotar og hrannir ísskriði í
jökulánum heima á Fróni.
Uppfrá ánni voru slegin tún og víðáttu
miklir akrar og bæirnir upp undir hinni
geysiháu fjallshlíð. Þegar ofar dró var
hinn sígræni barrskógur, en upp í háls-
brúnunum tók við birki og annarr harð-
gerðari gróður.
Þarna úr hlíðinni gafst okkur á að líta
eitt það allra fallegasta landslag, sem við
ferðuðumst um.
Þegar við náðum brúninni gaf að líta
hinar mörgu lágreistu byggingar, sem voru
á víð og dreif um heiðina, en nú vorum við
og komnir í um 800 m. hæð yfir sjó, og
hér vex ekki nema harðgerðari gróður —
ei að síður kjarnmikill — sem gefur bú-
fénaði ríkulega næringu, og hann aftur á
móti kjarnmikla mjólk til afurða.
Selin eru með húsum, byggðum úr stór-
viðum, sem nefnd eru bjálkahús, og eru
þau heldur klunnaleg, og frernur ósjáleg,
en það er hinn græni túnkragi, sem um-
Iykur húsin í óræktaðri heiðinni, sem gef-
ur þeim hinn hlýlega og æfintýralega svip,
svo mann langar að skoða þau frekar.
F R E Y R
fimmtíu ára