Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1951, Page 116

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1951, Page 116
96 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLApS ÍSLENDINGA Þess mætti geta hér að Vilhjálm- ur skrifaði merkilega grein rétt eftir aldamótin og birti í ritinu „Poet Lore“, sem gefið er út í Boston. Var greinin til þess skrifuð að sýna hvernig ort væri á íslenzku — og sérstaklega til þess að sýna stuðlana og höfuðstafina. í henni var þessi vísa sem dæmi. Ég held ég muni hana rétt. Hún er svona: “Andy found the flute had sounded False, and ground his teeth in rage, While the hound with hope unbounded Hopped around the barren stage.” Vilhjálmur orti ekki þessa vísu sem skáldskap, en hann sýnir það þar hversu vel hann skildi íslenzka ljóðagerð. Þá er einn flokkur vestur-ís- lenzkra skálda enn, sem ekki hefir verið minst: Það er fólk sem flogið gat fram og aftur, var jafnvígt á báðar hendur, gat ort hvort sem vera vildi á íslenzku eða ensku og þýtt viðstöðulaust af öðru málinu á annað. Meðal þeirra má telja þá, sem hér segir: Prófessor Skúla Johnson, Prófessor Richard Beck, Paul Bjarnason, Láru Goodman Salverson, Jakobínu Johnson, Dr. Gísla Gíslason, Erlend G. Gíslason, Sigurð Sigvaldason, séra H. J. Leo, séra Runólf Fjeldsted. Paul Bjarnason mun vera eini maðurinn nú lifandi, sem þýðir þannig af íslenzku á ensku, að stuðlar og höfuðstafir halda sér. XII. Hér koma að lokum þýðingar af kvæðum tveggja skáldanna, sem sem eru tilnefndir í kaflanum næst á undan. Dýru verði keypt Eftir Christopher Johnston í kvöld ég kann ei lag; mig kvelur sálræn þraut, því ónýtt þref og þjark í dag mig þreyttan rænti hverjum brag — þeim fáu’, er fyr ég hlaut. Sem fugl, er enginn ann, ég einn að sorgum bý, með brotinn væng og bjarma þann, er brann í auga, sloknaðan og hjartað breytt í blý. Þó græddi ég gull í dag. — Já, græddi aldrei meir — en galt í staðinn lífs míns lag: Það lífsjörð minni breytti í flag, og öllu gulli í eir. Vængir næiurinnar Eftir Christopher Johnston Á sólvængjum morguns að svífa til sælu — ég kýs mér ei þrótt. En þagnvængir þínir mig hrífa, ó, þögula, friðsæla nótt. Þar mánans og stjörnulog streymir ég stöðugt vil berast í frið. Þar blæguðinn blíðlega dreymir í blundi, við ljósöldu hlið. Já, eða sem barn meðal blóma, sem blunda við lækjarins nið í dýrðlegum daggtára ljóma ég dreymandi leita að frið. Ó, nótt! Gef mér sál þinnar sálar, og síbjarta stjarna, þinn eld, svo líf mitt um lífsbrautir hálar sé ljósinu’ og skyldunni seld. Heimspeki ivííugs manns Eftir Vilhjálm Stefánsson Á sál mína leitar kend í kvöld, sem kærleikur skaparans
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.