Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1951, Page 136

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1951, Page 136
116 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA brot hér. Þessir yfirburSir eru því miöur óðum að tapast. Frændur okkar, Skotar, heftSu haldiö betur á. sinu, ef þeir heföu átt sitt sérstaka og sameiginlega móöur- mál og aörar eins bökmenntir á því eins og við Islendingar. Þjóöræknisfélagið þyrfti að koma ungu fólki af íslenzku kyni i skilning um það, að hér getur þaö varla talist dyggð gagnvart hinu nýja fóstur- landi að afneita menningararfi feðra sinna, þótt það teljist vottur um þjóðhollustu I einræðisríkjum að ofurselja foreldra slna I böðla hendur, ef svo stendur á. Sem betur fer eru íslendingar hér vest- an hafs nú að koma upp háborg íslenzkrar menningar I Vesturheimi, þar sem er kennarastóllinn I íslenzkum fræðum við Manitoba-háskóla. Sú háborg verður að komast upp og standa, þótt Islenzkan hverfi sem mælt mál meðal almennings, en æskilegast er, að Islenzkan lifi sem lengst á tungu fólksins, svo að kennara- stóllinn verði ekki eins og „kirkja á öræfa- tind". Sú þjóð, sem nú byggir ísland, telur ekki nema helming þess mannfjölda, sem drepinn var I loftárásunum á Dresden á 24 klukkustundum, samkvæmt því, sem ég las I nýju hérlendu læknatímariti. Samt sem áður myndi ásýnd menningarinnar I heiminum breytast og verða svipminni, ef íslenzka þjóðin væri þurrkuð út. Það er af þvl, að íslendingar eiga sérstæða og sjálf- stæða menningu og hana eiga þeir fyrst og fremst því að þakka, að I tæka tlð voru uppi menn, sem skráðu sögur fyrstu kynslóðanna I landinu. Ég trúi þvi, að amerísk menning eigi mikla framtíð fyrir sér, en þó því aðeins, að ekki sé kastað á glæ minningunni um landnám og lifsbar- áttu fyrstu kynslóða hvítra manna hér I álfu. Það er skylda fólks af íslenzku kyni og þá Þjóðræknisfélagsins fyrst og fremst að varðveita frá glötun allar leifar hins íslenzka landnáms hér og leggja með þvl fram íslenzkan skerf til framtíðarmenn- ingar Vesturheims. Til þess þarf að bjarga öllu þvl, sem bjargað verður viðvlkjandi lífi og starfi landnemanna og fyrstu kyn- slóðanna, ná myndum af þeim, upplýs- ingum um ætterni þeirra og ættartengsli við gamla landið, sögum af afrekum þeirra og séreinkennum. Nú á sú villimennska sér stað meðal íslendinga hér I álfu, að ljós- myndum af landnemum og fágætum, dýr- mætum bókum á íslenzku er ýmist brennt eða þeim hent út á sorphaug. Merkur maður hér skýrðl mér nýlega frá þvl, að hann hefði fundið fágætar, Islenzkar bæk- ur á sorphaugnum utan við bælnn, sem hann býr I. Mér var einnig skýrt frá þvl, að við dauða eins íslendings, sem ára- tugum saman hafði safnað bókum, blöð- um og tímaritum, hefði öllu safni hans verið brennt, af þvl að það var stórt fyrir- ferðar. Þjóðræknisfélagið verður að fá góða menn I hverri íslendingabyggð til að bjarga þvl, sem hægt er, af gömlum bók- um og gömlum ljósmyndum, að ég nú ekki tali um kirkjubókum úr söfnuðum Isiend- inga. Sama er að segja um gömul íslenzk örnefni, sem fullt er af, einkum I Nýja- íslandi. Það eru slðustu forvöð með margt af þessu, en betra er seint en aldrei. Hér vestra er margt ágætra Islendinga, en það þarf að skipuleggja og samræma krafta þeirra I þessum tilgangi og það verður Þjóðræknisfélagið að gera, annars verður það ógert. Til þess þarf auðvitað fé, en það ætti að vera auðfengið ef viljann vantar ekki. Bláfátækir landnemar sam- einuðu krafta slna þegar á fyrstu árunum til þess að koma sér upp kirkju I hverri sveit, launa presta og gefa jafnvel út blöð og tímarit. Ef allar þær þúsundir manna af Islenzku kyni, sem nú búa I þessari heimsálfu, fást ekki til að leggja fram nokkur þúsund dollara árlega til þess að bjarga íslenzkum menningarverðmætum frá glötun og leggja með þvl stein I fram- tíðarbyggingu amerlskrar menningar, þá eru þeir ættlerar, lélegir synir feðra sinna og ennþá lélegri feður afkomenda sinna. Ég álít það höfuðnauðsyn, að Þjóðrækn- isfélagið hafi fastan erindreka I þjónustu sinni, sem ferðist um allar íslendinga- byggðir, safni saman gömlum Islenzkum Ijósmyndum og bókum, skrásetji merki- legar frásagnir frá landnámsöldinni hér, skrifi upp eða öllu heldur ljósmyndi allar kirkjubækur, sem til eru, og reyni að hafa upp á ættum þeim, sem komnar eru af landnemunum. Það þarf að glæða áhuga manna I hverju byggðarlagi fyrir þessu og að sjálfsögðu hafa um þetta samvinnu við fræðimenn á Islandi, þegar um er að ræða ættfærslu eða annað, sem ræturnar standa að þar heima. Ef þetta tekst, Þ& mun Þjóðræknisfélagsins verða minnst hér I landi öldum saman og nafn þess verða skráð bæði I menningarsögu Islands og Ameríku. —0—0—0— Ég get því miður ekki varið lengri tíma til dvalar hér vestan hafs, þótt mér heföi þótt vænt um að fá að mæta sem gestur á ársþingi Þjóðræknisfélagsins. Ég vil ÞvI biðja stjórn þess að koma á framfæri inni-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.