Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1972, Page 20

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1972, Page 20
Tímarit Máls og menningar írar þyrptust til þeirra skipa, sem fluttu Evrópumenn yfir hafið, með fnyk af fúlum kartöflum að baki sér, vildu bara komast á brott frá þessu fordæmda landi, sem hafði svipt þá allri von, landi sultar og sóttkveikju. Fram til þess- arar stundar höfðu Ameríkuferðir verið stundaðar að sumri og vori. En nú lá fólkinu á. Menn flýðu heimalandið á öllum árstíðum og stigu á skip án þess þeir ættu nokkuð sér til viðurværis né heldur von um vinnu vestan hafs. Menn vildu bara komast burt, hvað sem það kostaði. Árið 1846 töldu írskir útflytjendur 106 þúsundir, næsta ár 215.000, og árið 1851 var tala útflytjenda orðin 250.000. Þótt úlflytjendum fækkaði nokkuð næstu ár, var landflóttinn mikill. Ekki gátu allir goldið fargjald sitt, margir gósseigendur borguðu undir leiguliða sína til þess að hreinsa stórbúin sín og breyta jörðunum í beitilönd, framleiða þar afurðir búpeningsræktar í stað hinna snautlegu af- urða, sem markað höfðu samskipti leiguliða og gósseigenda. Síðar urðu margir írar, sem höfðu komið undir sig fótumnn í Ameríku til þess að borga ferðalagið vestur um haf, þegar þeir höfðu komið sér þar fyrir. Síðar meir áttu írar, bólfestir í Ameríku, eftir að marka og styrkja frelsisbaráttu landa sinna í heimalandinu. Á árunum 1845—1851 fóru um tveir þriðju hlutar írskra útflytjenda til Bandaríkjanna, hinir til Kanada. Og þetta var mikið álag á skipafélög þau, sem urðu að flytja útflytjendurna vestur um haf. Tilvera írsku flóttamann- anna á skipunum yfir hafið var að mörgu leyti áþekk ævi þeirra heima á írlandi. Soltnir, lúsugir og veikir af hitasótt fluttu þeir írland í rauninni yfir hafið. Af þeim sem fluttu frá Liverpool til Kanada var einum af hverjum 14 varpað í sjóinn, af hinum sem fóru frá Cork til Vesturheims, önduðust 1 af hverjum 9 á hafi úti. Og í endurminningu írsku þjóðarinnar liafa „líkkislu- skipin“ geymzt í trúu minni. Hvorki Kanada né Bandaríkin fögnuðu þessum írsku útflytjendum sem góðum gestum. Hinir írsku flóttamenn, flestir bændur að uppruna, settust að í fátækrahverfum amerískra stórborga, og um langa stund dvöldust þeir þar við framandi lífsskilyrði og það var varla fyrr en á þessari öld, að þeim tókst að festa rætur í landi, sem var fastara undir fæti en móland ættjarðarinnar. Á árum hinnar miklu hungursneyðar var írland lostið þeim örlögum, sem öllum löndum Evrópu tókst að afstýra: írland eitt landa álfu okkar missti helming mannfjölda síns frá 19. öld fram til aldamóta. Slík þróun er með öllu einstök í sögu Evrópu á þessum tímum. Árið 1851 hefði írland samkvæmt öllum lögmálmn átt að hýsa um átta og hálfa milljón manna. En þjóðinni liafði fækkað um tvær miljónir, sumpart fyrir sakir sultar og 162
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.