Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1972, Page 72

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1972, Page 72
Tímarit Máls og menningar í þessu verkfalli voru ekki veittar nema allra nauðsynlegustu undanþágur; í þeim efnum var öldin önnur en nú er. Bæði var Dagsbrúnarstj ómin miklu harðari en síðar hefur orðið, og svo var nefnd sú, sem ævinlega er falið að sjá um undanþágurnar, undir stöðugu eftirliti verkfallsvarðanna, enda hélt hún til í sama húsi. í síðasta verkfalli (1970) var þessi nefnd falin og vissi enginn neitt um hennar gerðir. í verkfallinu ’55 var samt veitt ein undan- þága strax í upphafi sem segja má að hafi verið tvíeggjað vopn. En hún kom heldur ekki til af góðu. í undanförnum verkföllum hafði bílaskortur mjög háð allri verkfallsvörslu. Og þarsem séð var, að þetta verkfall yrði ekki með þeim auðveldari, var gripið til þess ráðs að veita leiguhílastöðinni Hreyfli tmdanþágu á bensín með því skilyrði að bílstjórarnir keyrðu fyrir okkur vissan tíma dag hvern. Þetta varð til þess að við fengum bílstjóra á öðrum stöðvum á móti okkur. Og það segir sig sjálft, að það veikir verkfall þegar verkalýðurinn berst innbyrðis, einmitt þegar ríður á að hann standi saman. Þá er það einn daginn, að við erum keyrðir tveir útá Seltjarnarnes til að fylgjast með bátsferðum; heyrst hafði að verið væri að reyna að smygla bensíni ofanaf Akranesi. Bíllinn sem flutti okkur gat auðvitað ekki beðið. Gengum við nú heim að einum bænum, en þar taldi ég mig þekkja bústjór- ann; ætlaði að spyrja hann hvort hann hefði orðið var við grunsamlegar bátsferðir. En ekki vorum við komnir alla leið, þegar sex menn - sem virtust einna helst hafa sprottið uppúr jörðinni - komu á móti okkur og voru hinir vígalegustu. Þóttist ég kenna þar leigubílstjóra af Borgarbílastöðinni. Þeir sögðu okkur að snáfa burt ef við vildum ekki hafa verra af, við hefðum ekk- ert þarna að gera. Við vorum nú ekki á því og rifumst við þá nokkra stund. Sáum við þá í hendi okkar af þvi sem þeir létu útúr sér, að von var á bát með bensíntunnur og þeir þarna staddir til að taka á móti honum. Félagi minn stökk þá í burtu, að því er bílstjórunum virtist af hreinni hræðslu, en var auðvitað að fara í síma til að ná í meiri mannskap, því tveir gátum við ekkert gegn þessu ofurefli. En þegar þeir sáu að ég var ákveðinn að fylgja honrnn ekki, réðust þeir á mig, lyftu mér upp, báru mig heim að búinu og sögðu, að svona maður ætti ekki heima nema á einum stað, þ. e. í hland- forinni. Leist mér nú ekki á blikuna. Einn þessara manna þekkti ég með nafni; nefndi það nú og sagðist mundu benda á hann síðarmeir ef þeir gerðu mér eitthvað til miska. Kom þá fát á vininn, og reyndi hann að telja félaga sína á að láta mig vera. Upphófst þá mikið rifrildi bílstjóranna í milli og milli mín og þeirra, og stóð það í klukkutíma að minnstakosti, eða þangað 214
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.