Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Síða 3

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Síða 3
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR . 35. ÁRG. . 3.-4. HEFTI . DES. 1974 Gunnar Benediktsson Þórbergur Þórðai son Kveðjuorð yfir honum látnum „Að glæða og ala önn fyrir, að framleiða en safna ekki auði, að starfa en heimta ekki, að mega sín mikils án þess að láta til sín taka - það er æðsta dyggðin.“ Þannig mælti spekingurinn Lao-tse, sem heilsaði þessum heimi fyrir hálfu þriðja þúsundi ára í landi morgunroðans, á strönd hafsins mikla, sem teygir sig milli andstæðustu skauta jarðar. Við orð þessa spekings hefur margur stöðvazt í leit sinni að ráðningu sjálfrar lífsgátunnar. Það eru ekki nema um það hil 70 ár síðan að ungur maður fór úr föðurhúsum í afskekktri sveit á afskekktu eylandi til að leita sárþyrstri sál svölunar í ráðningu gátunnar miklu um innstu rök lífsins og allrar tilveru. Hann hefur sjálfur sagt okkur söguna af upphafi þeirrar leitar. Hann leitaði á vit þeirrar menntastofnunar og þeirra manna, sem hann treysti bezt til að búa yfir þeirri þekkingu, sem sál hans þyrsti eftir. Þeirri sögu gleymir enginn, sem lesið hefur. Og hún er ógleymanleg ekki fyrst og fremst fyrir það, að þorsti hans eftir uppsprettu- lind spekinnar væri svo einstæður, við höfum lesið vitnisburði annarra um sams konar leit eða heyrt þá af vörum þeirra. En það hefur enginn sagt frá því eins og hann. Hann leitaði öðrum dýpra að lögmálum þessa þorsta og af heilli huga, og hann túlkaði öllum öðrum betur, það sem hann vildi segja. Þórbergur Þórðarson er sá agaðasti persónuleiki, sem ég hef kynnzt. Allir, sem þar vilja nokkurt orð til mála leggja, taka heils hugar undir það, að enginn hafi agað mál sitt af meiri einbeitni og heiðarleika en hann eða náð fullkomnari árangri. En það var aðeins einn þáttur í sjálfsögun hans. Eng- inn íslendingur hefur gefið þjóð sinni eins nákvæma skýrslu um baráttuna við sjálfan sig í eins heillandi formi og hann. Hann agaði alla sína manngerð, þrár sínar og vilja, vitsmuni til rökrænnar hugsunar og skilnings á lögmál- 9 TMM 129
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.