Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 129

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 129
Skammdegið í Tékkóslóvakíu 1974 hver störf langt fyrir neðan hans starfs- menntun, en þó því að'eins að hann beygi sig. Ýmsir hlíta því af því þeir eiga konu, börn, þurfa að greiða húsaleigu. Eg get borið um það að betra var að vera fangi á striðsárunum, auðveldara að vera hetja andspænis dauðanum en halda fullri reisn gagnvart þessum smáu nístandi erfiðleikum hversdagslífsins, - standa sig gagnvart óvini sem aldrei verður komist í návígi við. Og þeir sem ekki láta undan verða fyrir alls konar kárínum: Það er opnaður hjá þeim póstur, símtöl eru hleruð, lögreglan tekur þá til yfirheyrslu hvað eftir annað, og að lokum eru þeir teknir fastir og dæmdir til fangavistar. Við höfum hundruð af skjallegum sönn- unum fyrir þessu og höfum birt hluta af þeim hér í Vestur-Evrópu í bókinni „Prag talar". Framar öðrum verða gamlir kommúnist- ar og gamlir sósíalistar fyrir barðinu á of- ríkinu. Beitt er föstum handtökum en um leið notaðir silkiglófar. Þannig á að fara að þegar brjóta skal heila þjóð á bak aft- ur án þess að úthella blóði. Það er auðvelt að nefna dæmi. Prchlik hershöfðingi var 1970 dæmdur til 3ja ára refsivistar fyrir að hafa á blaðamanna- fundi hvatt til ákveðinna breytinga hjá Varsjárbandalaginu, en þeim var skömmu síðar komið í kring að hluta. Blaðamað- urinn Lederer situr í 2 ár í fangelsi fyrir að rita tvær greinar þar sem hann gagn- rýndi afstöðu Gomulku til stúdenta, en sú afstaða er einmitt opinberlega fordæmd í Póllandi nú. Rithöfundurinn Skutina fékk 4 ár fyrir handrit að sjónvarpsþætti sem aldrei var fluttur. Sagnfræðingurinn Jan Tesar er 6 ár inni á þeim forsendum að hann hafi samið dreifiblöð sem hafi hvatt fólk til að sitja hjá við kosningar, en réttur til að fara ekki á kjörstað er viðurkenndur í stjórnarskránni! Þeir óttast jafnvel þá dánu. Osku Smr- kovkýs sem lést í janúar 1974 var dreift í vindi svo að ekkert væri eftir af honum, og ekki fékk stúdentinn Jan Palach, sá sem framdi sjálfsmorð með því að kveikja í sér, að liggja kyrr. Jarðneskar leifar hans fjarlægði lögreglan úr grafreitnum í október 1973. En hörmulegasta hlið „normalíseringar- innar“ er sú hvernig andlegt líf hefur ver- ið drepið í dróma. Framþróun þjóðfélags- ins hefur beinlínis verið stöðvuð. Ekki eru til neinar tölur um þær bækur sem ekki hafa verið samdar, um kvikmyndir sem ekki hefur verið haldið áfram, um hug- myndir sem hafa fallið fyrir ofurborð, um ráðagerðir sem hafa gufað upp. Þegar 45 ára gamall vísindamaður er rifinn upp með rótum og honum meinað- ur aðgangur að sérgrein sinni í 5 eða 10 ár, er ferli hans að fullu lokið. Hann get- ur ekki unnið upp tapið síðar. Ástandið í menningarmálum er mjög þungbært og það mun hvíla sem farg á tékkóslóvösku þjóðunum kynslóðum sam- an. Ekki að ófyrirsynju komst Aragon svo að orði að þetta væri „Bíafra andans". Hjalti Kristgeirsson þýddi og endursagSi. 255
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.