Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 15
Tvenn þáttaskil ræðum þeim, sem þessar upplýsingar liafa leitt af sér, með því að afla enn meiri upplýsinga. Það er orðin tízka að halda því fram, að þau vandamál, sem tækni og vísindi hafa skapað, verði bezt leyst með enn meiri vísindum og enn þróaðri tækni. Bót á lélegri stjórnun fengist þá með enn meiri stjóm- un. Og sérfræðilegar rannsóknir má bæta upp með enn kostnaðarsamari þver- vísindalegum rannsóknum, á sama hátt og þegar mengunarvandi í fljótum er leystur með því að skella á markaðinn dýrum þvottaefnistegundum, sem ekki er mengunarhætta af. Og eigi að safna enn nýjum upplýsingaforða, auka þekkingu enn að mun og reyna að leysa vandamál samtíðar okkar með því að framleiða enn meira af vísindum, - þá er allt kórónað. Lengra verður naumast komizt í þeirri viðleitni að afstýra kreppum með því að styrkja allt það, sem skapar þær. Jón Gunnarsson þýddi. [Ivan niich er fæddur í Vín áriff 1926. Hann nam guðfræði og heimspeki við Gregorí- anska háskólann í Róm og tók doktorsgráðu í sögu við háskólann í Salzburg. Hann fór til Bandaríkjanna 1951, þjónaði um tíma sem aðstoðarprestur söfnuði Ira og Púertórík- ana í New York, og var vararektor katólska háskólans í Puerto Rico 1956-1960. Hann stofnaði 1964 í Cuernavaca í Mexíkó „Center for Intercultural Documentation“ (CID- OC). Rit hans eru flest sprottin upp úr umræðum sem fram hafa farið á ráðstefnum og námskeiðum CIDOC. Auk fjölmargra ritgerða í tímaritum hefur Rlich gefið út bækurn- ar Celebration of Awareness, Deschooling Society, Tools for Conviviality. Síðastnefnda bókin kom út 1973, og er hér birtur upphafskafli hennar. - Dlich telur sig vera að rita „eftirmæli iðnaðaraldarinnar“ í þessum bókum og öðrum sem væntanlegar eru. Gagnrýni hans á stofnanir nútímaþjóðfélags iðnaðarríkja og öfugþróun þeirra kemur glöggt í ljós í þeim kafla sem hér er birtur. Jákvæðar hugmyndir hans koma þar hinsvegar ekki fram. Sjálfur segir hann að sig langi til að sýna fram á að þeir tveir þriðjungar mannkynsins sem aldrei hafa notið neinna ávaxta af dásemdum iðnaðaraldarinnar, eigi um aðra leið að velja en breiða braut iðnvæðingarinnar. Hugsun Illich er að sumu leyti tengd vist- fræðilegum kenningum. Þess þarf naumast að geta að kenningar Rlich hafa sætt harðri gagnrýni. Málgögn páfans í Róm hafa gert hríð að honum; kommúnistaflokkar hafa lýst hann í bann. Eins og nú er ástatt í heiminum munu þó margir heilskyggnir menn viður- kenna réttmæti og skerpu gagnrýni hans. Hugmyndir hans um úrbætur kann sömu niönn- um einatt að þykja útópískar; og jafnvel að mannlegu eðli sé hér enn einusinni sýnd of- mikil tiltrú. En þess er þá að geta að kenningar Illich eru í mótun. - S. D.] 141
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.