Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 102

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1974, Page 102
Tímarit Máls og menningar sérstaklega gamlar konur. Staða kvenna á miðöldum og síðar var ekki uppá marga fiska, og veikleiki þeirra fyrir áhrifum kölska varð ekki til að styrkja hana. Þó gekk ákærendum illa að koma heim og saman fólskuverkum gam- alla kvenna, sem taldar voru nornir og vesölu ástandi þeirra sjálfra, svo að þær virtust ekki líklegar til stórræðanna við fyrstu sýn. En þetta var auðvelt að skýra á þann veg, að djöfullinn yfirgæfi þær, þegar þær voru komnar í hendur ákærendanna og þá væri þeim engrar hjálpar að vænta frá herra sín- um og meistara. í Evrópu var fjöldi ákærðra kvenna mörgum sinnum fleiri heldur en karla, enda lofar Sprenger guð fyrir það, að hann hafi verndað karlkynið fyrir ósköpum galdranna. Það þurfti ekki meira en að gömul kona byggi einsömul í kofa, til þess að vekja tortryggni, hvað þá ef hún stundaði grasalækningar og fór með þulur eða tuldraði við grasasuðu. Þá gat enginn efazt um, að þar færi römm galdranorn. Konur urðu líka oft eldri heldur en karlmenn á þessum tímum, og urðu með aldrinum ískyggilegar í útliti. Sum- ar þessara kvenna hafa kunnað eitthvað í því sem nefndist forn fræði, sem var meinlaust kukl, og í löndum mótmælenda hafa þær munað kaþólskar bæn- ir. Slíkt nægði til að stimpla þær sem nornir. Palladius biskup, siðaskipta- frömuður Dana, lýsti því yfir í vísitasíu í biskupsdæmi sínu, að allir þeir, sem færu með kaþólskar bænir og signingar væru galdranornir eða seið- skrattar og skyldu brennast. Ekkjur voru oft bornar galdraáburði og annað kvenfólk, sem samlagaðist ekki samfélagsviðmiðuninni um hegðun og jafnvel útlit. Sprenger taldi latn- eska orðið „femina“, kona, þýða veiklun trúarinnar eða veika trú, fe = trú og mina = mínus. Gamlar konur og konur sem lifðu ekki því, sem nefnt var eðlilegt kvenlegt líf voru alltaf auðveld bráð fyrir kölska. Barnlausar konur, óbyrjur og ógiftar rosknar konur verða einkum fyrir galdraáburði í Afríku nú á dögum, og svo mun hafa verið á 16. og 17. öld í Evrópu. Það tók brennuvargana ekki langan tíma að fá gamlar veikburða konur til þess að játa það á sig, sem þeir vildu láta þær játa, með pyndingum. Ekk- ert sannfærði áköfustu ákærendurna þó jafnvel um galdurinn sem staðreynd eins og þær játningar nornanna, sem fengust án þess að þær væru beittar pyndingum. Ein slík norn er sögð hafa játað sig seka fyrir dómstóli og síðan haldið játningunum áfram á bálkestinum. Ýmsar orsakir gátu legið til þessa. Fjölmörg dæmi eru um það í morðmálum, að margir aðilar þykjast hafa framið morð, sem var eins manns verk, og kemur hér til sektarkenndin. Sekt- arkenndin virðist verða mönnum ofviða og þá stöðvar enginn skriftaflaum- inn sem flæðir fram og brýtur af sér allar hömlur, sem haldið hafa henni í 228
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.