Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 104

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1996, Side 104
langar mig að hrópa, ekki frekar en eiginmenn og eiginkonur. Eina ófrávíkj- anlega reglan er sú, að þó að þeir virðist vera það, þá er það ekki svo. Aldrei hélt ég að mín kona væri fullkomin. Ég elskaði hana, en ég var ekki neitt að blekkja sjálfan mig. Ég man ... Nei, látum það bíða til betri tíma. Ég ætla frekar að rifja upp annan fyrirlestur sem ég hlustaði á fyrir nokkrum árum á bókmenntahátíðinni í Cheltenham. Fyrirlesarinn var pró- fessor frá Cambridge, Christopher Ricks, og þetta var alveg glansandi upp- troðsla. Skallinn á honum glansaði ákaflega mikið, skórnir hans voru glansandi svartir og fyrirlesturinn var svo sannarlega glansandi líka. Efhið var „Mistök í bókmenntunum og hvort þau skipta máli.“ Til dæmis Évtúsénkó, hann gerði víst svakalega skyssu í einu af kvæðunum um amer- íska næturgalann. Púskín fór með tóma dellu varðandi hermannabúning á dansleikjum. John Wain fór með fleipur um Hírósíma-flugstjórann. Nabokov — þetta kemur raunar dálítið á óvart — hann áttaði sig ekki á hljóðfræði nafnsins Lolita. Dæmin voru fleiri: Coleridge, Yeats og Browning voru meðal þeirra sem voru staðnir að því að vita ekki muninn á hauk og handsög eða jafnvel hafa yfirleitt ekki hugmynd um hvað handsög væri. Tvö dæmi kornu mér sérstaklega á óvart. Hið fyrra var athyglisverð uppgötvun varðandi Lord of the Flies. í þeim fræga kafla þar sem gleraugu Piggys eru notuð til að enduruppgötva eldinn veður William Golding í villu og svíma í ljósfræðinni. Fer reyndar þveröfugt með. Piggy er nefnilega nærsýnn, og með þeim gleraugum sem hann hefði samkvæmt því átt að nota hefði aldrei verið hægt að kveikja eld. Sama hvernig þeim hefði verið haldið, þau hefðu ekki með neinu móti getað látið geislana mætast í einum punkti. Hitt dæmið varðaði „The Charge of the Light Brigade“. „Inní dalinn dauðans / dátahundruð sex.“ Tennyson skrifaði þetta kvæði í hasti eftir að hafa lesið frétt í The Times þar sem kom fyrir setningin „einhverjum urðu á mistök“. Hann byggði líka á eldri frásögn þar sem minnst var á „607 bjúgsverð“. En síðar var fjölda þeirra sem tóku þátt í því sem Camille Rousset kallaði ce terrible et sanglant steeplechase[hry\[[\tgt og blóðugt hindru- narhlaup] leiðréttur og sagður 673. „Inní dalinn dauðans / dátahundruð sex og sjötíu og þrem betur“? Nei, það er einhvern ekki nógu góð sveifla í því. Kannski hefði mátt rúnna þetta af upp í sjö hundruð — það hefði eftir sem áður verið ónákvæmt, en hefði það þó ekki verið skárra? Tennyson hugsaði málið og ákvað að láta kvæðið standa óbreytt: „Sex hundruð er miklu betra en sjö hundruð (finnst mér), bragfræðilega séð, svo ég hef það óbreytt." Að setja ekki „673“ eða „700“ eða „hub 700“ í staðinn fyrir „600“ virðist mér nú varla geta talist Mistök. En orðin sem sýna ótrausta þekkingu Goldings á sjóntækjafræði eru hins vegar tvímælalaust villa. Næsta spurning er: Skiptir það máli? Eftir því sem ég man fyrirlestur prófessor Ricks rétt, var 102 TMM 1996:2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.