Skírnir - 01.01.1963, Síða 10
6
Árni Magnússon assessor
Skírnir
inn, byrjaði hann að læra paradigmata græcæ lingvæ;
það var fyrir jólin anno 1673, en eftir jólin 1674.
Síðan hélt hann so fram í privata institutione [heima-
skóla], þar til um haustið, þegar hann var 17 ára, það
er anno 1680. Merkir íslendingar IV, 57—58.
Heimakennarar Arna voru þeir Ketill, afi hans, og Páll,
móðurbróðir hans. Árið 1680 fór hann í Skálholtsskóla
og var brautskráður þaðan 1683. Um námsferil bróður
síns segir Jón Magnússon:
Um allan þennan tíma auglýsti sig hans acutum in-
genium [skörp greind] í öllu, sem hann skyldi læra,
so hann þótti alltíð að gáfum sambjóða þeim betri sín-
um jafnöldrum. Op. cit. 58.
Ekkert bendir til, að ummæli Jóns um bróður hans séu
oflof. Samsumars og Árni lauk námi í Skálholti (1683)
hélt hann til Danmerkur og var innritaður í Hafnarháskóla
um haustið. í fyrstu lagði hann stund á guðfræði, eins og
flestra íslenzkra stúdenta var siður í þann tíð, og lauk
prófi í henni — varð attestatus, eins og það var kallað —
árið 1685.
Vorið 1684 komst Árni Magnússon í kynni við Thomas
Bartholin, sem það ár var skipaður fornfræðingur kon-
ungs að látnum Hannesi Þorleifssyni, er farizt hafði á
leið til Danmerkur með handrit, sem hann hafði safnað
hér lieima. Bartholinar voru um þessar mundir sú mennta-
ætt dönsk, er mest mátti sín. Var Árna því mikill styrkur
að samhandi við hana. Starfaði hann í þjónustu Thomasar,
þar til liann andaðist árið 1690, bæði að bókagerð og upp-
skriftum, fór til Noregs á hans vegum til handritarann-
sókna og handritasöfnunar (1689—1690) og þar fram
eftir götum. Um sömu mundir og Thomas Bartholin dó,
komst Árni í kynni við Matthias Moth, yfirsekretéra í
kansellíinu, einn voldugastan Dana á þessum árum og
bróður Sophie Amalie Moth (greifafrúar af Sámsey),
frillu Kristjáns V. Nú er Matthias Moth að vísu meira met-
inn fyrir safn til danskrar orðabókar, er hann gerði og
mikið er stuðzt við í síðari orðabókum. Matthias Moth