Skírnir - 01.01.1963, Side 22
18
Einar Ól. Sveinsson
Skirnir
að niðurstöður samninganna gengju Islendingum að óskum.
Leyfum við okkur að bera fram eftirfarandi tillögur um það.
1. Handritunum yrði komið fyrir í Landsbókasafni eða í
Háskólanum, og þarf ekki að fjölyrða um það. Hitt væri at-
hugunarvert, hvort ekki þætti ástæða til, samstundis og hand-
ritin kæmu hingað til lands, að útbúa fyrir þau öruggan stað
utan bæjar til varðveizlu þeirra, ef ótryggilegt þætti að hafa
þau í Reykjavík. — Rétt þætti okkur, að sérstakur forstöðu-
maður væri skipaður til að sjá um handritin og hagnýtingu
þeirra og annast um útgáfur eftir þeim.
2. Árlega væri veitt fé af íslenzka ríkinu til að koma hand-
ritunum og efni þeirra á framfæri meðal vísindamanna. Þetta
mundi einkum vera með þrennu móti: 1) Vísindalegar út-
gáfur eftir handritunum. 2) Ljósprentanir og ljósmyndir.
3) Æskilegt væri að taka handritin á míkrofilmu, og mætti
gefa öðrum Norðurlandaþjóðum tækifæri að eignast þær.
Með slíku móti væri fræðimönnum veittur kostur á að hafa
hverjum í sínu landi ígildi handritanna.
3. Rétt væri að efna til styrkveitinga fyrir erlenda fræði-
menn, sem nota vildu handritin og nema íslenzku hér á landi.
Væri rétt að hafa eigi færri en 3—4 föst stipendia, svo há,
að styrkþegamir gætu verið hér sér að kostnaðarlitlu, meðan
þeir nytu styrksins.
4. Rókasöfn í Reykjavík þarf að efla sem bezt, sérstaklega
Landsbókasafn, svo að þau séu sem færust að gegna sínu
mikla hlutverki í þágu norrænna rannsókna.“
Samkvæmt ræðu, sem Rjöm Ölafsson menntamálaráðherra
flutti á Alþingi 1950 vegna tillögu frá Gunnari Thoroddsen,
sem ég kem brátt að, samþykkti rikisstjórnin þessar tillögur
á fundi 31. júlí 1946.
I bréfinu var rætt um styrkveitingar fyrir erlenda fræði-
menn, sem nota vildu handritin og nema íslenzku hér á landi.
Síðari liður þessarar tillögu var framkvæmdur á vissan hátt,
því að „í febrúarmánuði 1948 fór menntamálaráðuneytið
þess bréflega á leit við fjárveitinganefnd Alþingis, að tekinn
yrði i fjárlög nýr liður, styrkur til námsmanna frá Norður-
löndum, samkvæmt ákvörðun menntamálaráðuneytisins, kr.