Skírnir - 01.01.1963, Page 30
26
Einar Ól. Sveinsson
Skírnir
unarinnar, enda æskileg sem bezt samvinna þessara aðilja
við stofnunina. Hins vegar þótti sjálfsagt, að aðrir stjórnar-
menn tilheyrðu Háskóla Islands, en hitt var ekki eins víst,
hve margir þeir skyldu vera. Nefndin var í öndverðu inn á
þeirri hugmynd, að þeir væru fimm, auk forstöðumanns,
prófessorar úr þremur greinum íslenzkra fræða, íslenzkri
réttarsögu og kirkjusögu Islands, enda tiltekið, að stofnunin
skyldi einnig sinna þeim greinum. En ekki þótti auðsær vinn-
ingur að hafa svo marga í stjórn (eða alls 9), og lækkaði
Heimspekideild töluna svo, að gert var ráð fyrir þremur, ein-
um úr hverri grein íslenzkra fræða. Þessu breytti Háskóla-
ráð svo, að kosnir skyldu af Háskólaráði þrír prófessorar við
Háskólann, og felst vitanlega í því svipað sjónarmið og nefnd-
in hafði verið inn á, að full ástæða gæti verið, að prófessor
í réttarsögu og kirkjusögu sæti í stjómamefndinni. En svo
framt tala stjómenda var ekki aukin, var ógerningur að hafa
fulltrúa frá öllum þessum greinum, og leiddi þá augljóslega
af því, að hverfa varð frá því að binda sætin við sérstakar
greinir, enda var það með öllu óþarft, þar sem gert var ráð
fyrir, að skipta mætti stofnuninni í deildir eftir fræðigrein-
um og, ef vildi, hugsa sér fleiri menn kvadda til stjómar
hverrar deildar. Þetta síðasta, sem kemur fram í tillögum Há-
skólans á öllum stigum málsins, er ekki tekið upp í lögin, en
ekki rekst það á þau á nokkurn hátt og kynni að mega taka
upp í reglugerð.
í tillögum nefndarinnar, svo og Heimspekideildar og Há-
skólaráðs, var gert ráð fyrir sérstökum deildum, sem væri
þjóðfræða- og ömefnadeild. Þetta er að vísu ekki tekið upp
í lagafrumvarpið, en kemur fram í greinargerð.
Ætlazt var til þess frá upphafi, að stofnunin tæki við störf-
um handritaútgáfunefndar, sem þá mátti skoðast sem fyrsti
vísir þess þáttar hennar, sem að íslenzkum handritum lýtur.
1 tillögum Háskólans, allt frá fyrsta uppkasti nefndarinn-
ar til samþykktar Háskólaráðs, er skýrt tekið fram um hús-
næðisþörf stofnunarinnar. 1 tillögum Heimspekideildar segir:
„Stofnunin hafi lestrarsal, svo og minni herbergi, t. d. sér-
herbergi fyrir fortöðumann og fasta starfsmenn, herbergi til