Skírnir - 01.01.1963, Síða 87
ÓLAFUR HALLDÓRSSON:
ÍJR SÖGU SKINNBÓKA.
I
Skinnbók ein í safni Árna Magnússonar er auðkennd ÁM
62 fol., og er skrifuð á hana saga sú sem nefnd er Ólafs saga
Trvggvasonar hin mesta. Þessi nafnlausa bók verður hér í
greinarstúfnum nefnd með númeri sínu: 62, en sagan af Ólafi
kóngi skammstöfuð: ÓlTr. Skinnbókin er í stóru broti, um það
bil 33X24 sm.; á hverri blaðsíðu eru tveir dálkar og oftast
40 línur í hverjum, en þó stundum fleiri og stundiun færri,
og ekki ætíð jafnmargar línur í dálkunum á einni og sömu
blaðsíðu (40 línur á 81 bls. + 3 dálkum, 41 lína á 16 bls.
+ 2 dálkum, 39 línur á 2 bls. + 1 dálki, 42 línur á 1 bls.,
38 línur í einum dálki og 13 línur í einum). Bókin er að
heita má öll skrifuð af sama manni, en á forsíðu ellefta blaðs
hefur hann einungis skrifað sextán og hálfa línu af fremri
dálki, en svo tekur annar maður við og lýkur honum; síðan
tekur aðalritarinn aftur til og skrifar hálfa elleftu línu af
aftari dálki, en þá kemur þriðji maðurinn til og lýkur þeim
dálki. Það sem aðalritarinn hefur skrifað, verður hér nefnt
hönd I, en skrift hinna hönd II (i fremri dálki) og hönd III
(í aftari dálki).
Fræðimenn hafa talið að 62 hafi verið skrifað í hyrjun
15. aldar, en það mun rangt; handritið er varla yngra en frá
hér um 1370. Sá maður sem átti hönd I, hlýtur að hafa verið
æfður skrifari, en ekki vitum við nú um annað frá hans hendi
en eitt eða fleiri blöð í Sturlunguhandriti því sem nefnt er
Reykjarfjarðarbók (ÁM 122b fol.). Kristian Kálund, sem gaf
Sturlungu út í Kaupmannahöfn 1906—11, eignar þessum
skrifara blað 2 í þeirri bók og telur líklegt að hann hafi einn-
ig skrifað bl. 25—27, en hann var í vafa um, hvort tvær eða
þrjár hendur væru á Reykjarfjarðarbók (sjá formála að útgáfu