Skírnir - 01.01.1963, Síða 116
104
Ólafur Halldórsson
Skírnir
Árni mun hafa dáið ungur, og hefur Björn Brynjólfsson
haft fjárforráð sona hans (sama rit, III, bls. 462). Annar
sonur Geirs á Seylu er talinn Sturla, en fátt er um hann vit-
að, nema að hann mun hafa búið um tíma á Hólum í Eyja-
firði (sjá Isl. fornbréfasafn II, hls. 451, og V, bls. 817). Sturla
var faðir Bunólfs á Laugalandi, föður Höskuldar, föður
Þorsteins á Myrká, þess er bréfið lét gera, sem getið er hér að
framan (bls. 93—4), og satt að segja er eini nafnkenndi mað-
urinn í Eyjafirði sem agnarlitlar líkur benda til að átt hafi
bókina, svo að e. t. v. hefur hún verið skrifuð fyrir einhvern
forföður hans. En við skulum hætta þessum leik. Það er vita
gagnslaust að ætla sér að geta upp á fyrir hvern 62 hafi ver-
ið skrifað, eða hvernig leiðir þess hafi legið úr Skagafirði um
Eyjafjörð og suður að Hlíðarenda í Fljótshlíð, enda þótt eng-
inn vandi sé að benda á hugsanlegar leiðir. En líkurnar fyrir
því að 62 og Beykjarfjarðarbók hafi verið skrifaðar í Skaga-
firði, og einna helzt á ökrum, tel ég svo sterkar, að ég get
ekki fengið mig til að þegja yfir þeim, enda þótt fullnaðar-
sannanir séu engar til og muni aldrei fást.
VII
1 greinarstúf þessum hefur verið reynt að komast að raun
um hvar handritið ÁM 62 fol. hafi verið skrifað; hins vegar
hefur engin tilraun verið gerð til að benda á hver hafi skrifað
það, af þeirri einföldu ástæðu að það er ekki hægt. Nafn þess
manns sem skrifaði hönd I, stendur ef til vill í einhverju
bréfi eða annál, en mjög er óvíst að við værum neinu nær
þótt við kynnum að nefna það. Við þekkjum nöfn tveggja
manna sem skrifuðu Flateyjarbók: Jóns Þórðarsonar og Magn-
úsar Þórhallssonar, og við vitum að þeir voru prestar, en ekki
parið þar fram yfir. Þeir sem fengust við að skrifa bækur á
skinn hafa líklega sjaldnast verið svo frægir, hvorki af auði
sínum né athöfnum, að nöfn þeirra hafi komizt á blað og
varðveitzt. Ég hef ekki trú á að maður sá er skrifaði bréfið
frá Myrká, sem hér hefur verið minnzt á, og sennilega hef-
ur skrifað hluta af ÁM 81a fol., hafi verið einn af fyrirmönn-
um þeim sem nefndir eru í bréfinu og settu innsigli sín fyr-