Skírnir - 01.01.1963, Síða 168
156
Magnús Már Lárusson
Skírnir
yrðu skiptin frá 14. öld, eða um 1320—1340, í þeirri mynd,
sem þau hafa í skránni.
Þá yrði að vera eins ástatt um Kirkju-Njarðvík, þar sem
hún á að taka Yz hlut á móti Býjaskerjum. Kirkju-Njarðvík
er enn nefnd svo á fyrri hluta 16. aldar og er þá með vissu
í Kirkjuvogssókn. DI VIII 563—4,583, XII 116,151,178,404.
Jörðin er í eign Ólafs Ásbjarnarsonar og önnu Snjólfsdóttur
fyrir 1515 og ætti þá áður að hafa verið í einkaeign. Um
sumarið 1515 á Jón Einarsson sýslumaður að hafa deilt við
drykkju við umboðsmann höfuðsmanns út af afgjaldi sýsl-
unnar og verið settur í fangelsi, segir Espólín, III 45. Ólafur
Ásbjamarson lét Jóni í té Kirkju-Njarðvík, sem hann fékk
Ólafi Diðrikssyni, höfuðsmanni á skipi Sörens Nordbys, og
Hannesi Eggertssyni hirðstjóra, segir í vitnisburði á Bessa-
stöðum hinn 21.júlí 1515. Var afhendingin vegna Nordbys
og konungi til ævinlegrar eignar. Þó var innlausnarréttur
settur til 10 ára. Bréf þetta hefur varðveitzt í Bessastaðabók,
en tæpu ári síðar, 24. maí 1516, fær Jón Ólafi Ásbjarnarsyni
Stærriey á Skagaströnd. Er frumbréfið enn til, og segir þar,
að Jón hafi verið gripinn og fangaður af Ólafi Diðrikssyni
„og var svo í ómildra höndum et cetera“, þar til að Ólafur
lagði út sína jörð „honum til lausnar og frelsis sem mörgum
góðum mönnum er kunnugt orðið“. DI VIII 563—4, 583—4,
sbr. IX 184—5. Ey er talin 60 C, svo vart er Njarðvík meiri.
DI VIII 725—26.
I fógetareikningum 1547—1552 er Kirkju-Njarðvík undir
Bessastöðum; standa 2 kúgildi á jörðinni, en landsskuld er
12 vættir fiska. DI XII 116, 151, 177. Er þetta landsskuld, er
samsvarar 50 C jörð.
Vert væri að gera sér grein fyrir því, hvenær kirkja hafi
fyrst verið reist í Njarðvík. I fornbréfasafninu er prentaður
máldagi Njarðvíkurkirkju og ársettur haustið 1269, DI II 65
—6. Samkvæmt registri á hér að vera um Njarðvík í Gull-
bringusýslu að ræða. Máldagi þessi er reyndar frá því um
1200 eða jafnvel fyrr. Segir lýsingarákvæðið skýrt til um það.
Enn fremur er því við að bæta, að þar er prestskyld. Þessi