Skírnir - 01.04.2000, Blaðsíða 32
26
ÁRMANN JAKOBSSON
SKÍRNIR
I þættinum um hina föllnu eiginmenn er Hallgerði lýst sem
hættulegri konu, íslenskri Gunnhildi sem eins og valkyrja hefur
ráð karla í hendi sér.18 Það er örg kona sem Gunnar fellur fyrir á
Þingvöllum og dregur með sér í heimboð til Njáls þar sem allt fer
í háaloft:
Hallgerðr tók hpndina Bergþóru ok mælti: „Ekki er þó kosta munr með
ykkr Njáli: þú hefir kartnagl á hverjum fingri, en hann er skegglauss.“
„Satt er þat,“ sagði Bergþóra, „en hvárki okkart gefr þetta gðru at sgk; en
eigi var skegglauss Þorvaldr, bóndi þinn, ok rétt þú honum þó bana.“
(91)
Bergþóra er karlmannleg í útliti en Njáll kvenlegur. Hallgerður
sakar þau um að vera eins, sama kynið og þar með kynlaus. Þá
rifjar Bergþóra upp ergi Hallgerðar.
I fyrstu þremur þáttum Njálssögu eru kynntar til sögu þrjár
aðalpersónur sem falla illa að kynhlutverki sínu. Þegar þær hittast
allar á einum stað, í boði á Bergþórshvoli, brýst þetta allt fram og
skapar átakaás sögunnar. Af þessum kynusla stafar misklíðin.19
Eftir stendur Gunnar á Hlíðarenda, karlhugsjón riddaraaldar
holdi klædd, heitinn eftir bardögum og vegur „svá skjótt með
sverði, at þrjú þóttu á lopti at sjá“ (53).20 Hvort sem er fyrir hið
þríeina reðurtákn eða ekki nýtur hann ómældrar kvenhylli. Hann
er glæsimenni og ítrekað látinn stilla sér upp í sögunni þannig að
nema megi staðar við útlit hans og klæðaburð og lýsa þeim áhrif-
um sem hann veldur (85, 134, 150).21 Synir Starkaðar undir Þrí-
hyrningi láta það fara í taugarnar á sér að ,,[s]vá þykkir yðr kon-
um ... sem engi muni vera hans maki“ (148). Hin mikla karl-
18 Ursula Dronke (1981: 14-19) hefur fjallað meira um þetta.
19 Um kynusla og kenningar um hann, sjá m.a.: Geir Svansson 1998: 479-86.
20 Einar Ólafur Sveinsson (1933: 331-34) og Hermann Pálsson (1984: 17-21) hafa
bent á að Gunnar á Hlíðarenda sé riddaraleg hetja og lýsing hans sæki margt
til lýsinga á Hildibrandi í Þiðrekssögu. Sbr. Lönnroth 1976: 107-23.
21 Ekki er þetta þó jafn áberandi og í Laxdælu (sbr. Ármann Jakobsson 1998) og
má almennt heita að dáðir Gunnars séu í öndvegi í Njálu en útlit Laxdæla skipi
það í Laxdælasögu.