Skírnir - 01.04.2000, Blaðsíða 132
126 INGRID U. OLSSON OG ELSA G. VILMUNDARDÓTTIR SKÍRNIR
Af töflu 1 sbr. (8; 9), textanum hér að framan og 2. mynd hjá
Páli (1), bls. 98, sést að búast má við líkum aldri - um 1200 14C ár
- ef sýnið er u.þ.b. frá árabilinu 785-885 e. Kr. Gera verður ráð
fyrir að ekki sé unnt að aldursákvarða sýni sem greinist með C-
14 aldur u.þ.b. 1200 ár, með meiri nákvæmni en sem nemur allt
að 100 ára tímabili, jafnvel þótt koma mætti staðalfráviki rann-
sóknarstofu niður í aðeins 10-20 ár.
Ef bera á saman 14C geislavirkni einhvers tiltekins svæðis og
heildarvirkni jarðarinnar má nota sýni úr gömlum trjástofni, helst
með minnst 150 árhringjum. Geislavirknin er síðan mæld í sýn-
unum, sem hvert um sig er samsett úr nokkrum samliggjandi ár-
hringjum. Niðurstöðurnar eru bornar saman við kvörðunarferil.
Ef mynstrin passa saman og eru sannfærandi er unnt með ákveð-
inni samsvörunaraðferð (Wiggle matching) að ákvarða aldurinn
af mikilli nákvæmni og jafnframt að ákvarða smávægileg, stað-
bundin eða svæðisbundin frávik frá heildarvirkninni í andrúms-
loftinu.
Við leiðréttingar verður að taka tillit til óvissu í mælingum,
bæði á aldri sýnis og kvörðunarferils, en einnig verður oft að gera
ráð fyrir meiri óvissu en þeirri sem gefin er upp í niðurstöðum frá
rannsóknarstofum, þar sem óvissan er oft vanmetin. Til að rann-
saka nánar líkur hinna ýmsu mæligilda, þ.e. aldursdreifinguna,
verður að nota tölvuforrit.
3. Áhriffrá eldfjöllum, hverasvœðum og grunnvatni
Páll (1) afgreiðir áhrifin frá kolsýru sem streymir út á eldvirkum
svæðum með því að vitna í nokkrar sérvaldar heimildir, þrátt fyr-
ir það að til sé fjöldi greina eftir marga höfunda, þar á meðal
Ingrid U. Olsson (10), sem skrifaði yfirlitsgrein um efnið árið
1987.
I grein eftir Chatters o.fl. (11) eru kynntar rannsóknarniður-
stöður frá Hawaii. Höfundarnir fengu sömu niðurstöður úr
þremur sýnum af laufi lifandi trjáa. I fjórða sýninu, sem tekið var
nálægt hinum þremur en í ríkjandi vindátt frá nálægu eldfjalli, var
styrkurinn um það bil helmingi minni. Edwin A. Olson hafði
(12: T-4) komið fram með vísbendingar um hugsanleg eldfjallaá-