Skírnir - 01.04.2000, Blaðsíða 180
174
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
SKÍRNIR
hefði girt af land og kallað sitt, væri upphafsmaður allra glæpa, en
mannkyn hefði ekki átt að taka mark á honum.38 Þýski heim-
spekingurinn Karl Marx varð kommúnisti, þegar hann varð vitni
að því, að fátæklingum í Rínarhéruðum var meinað að sækja eldi-
við út í skóg eins og þeir höfðu gert öldum saman. Hver var að
ræna hvern? - spurði Marx: Fátæklingarnir landeigendurna eða
landeigendurnir fátæklingana?39 Bandaríski blaðamaðurinn Henry
George taldi, að orsök allra mannanna meina lægi í einkaeignar-
rétti á landi, en ráðið við þeim væri að leggja á landeigendur skatt
jafnháan jarðrentunni.40 Mál íslenskra veiðigjaldssinna er nánast
eins og bergmál af skoðunum og röksemdum þessara manna.
Stuðningsmenn kvótakerfisins taka hins vegar frekar undir með
þeim John Locke, Adam Smith og skoðanabræðrum þeirra, sem
telja einkaeign á náttúrugæðum og öðrum hlutum og frjáls við-
skipti með slík gæði hagkvæmustu og réttlátustu lausnina á vanda
skortsins. Og þeir geta sofið á næturna, þótt öðrum gangi vel.
38 Jean-Jacques Rousseau, A Discourse on Inequality, þýtt og útgefið af M.
Cranston (Penguin Classics, Harmondsworth, Middlesex, 1984; fyrst útgefið
1755), II. hluti, 109. Sbr. Einar Oigeirsson, Rousseau (Þorsteinn M. Jónsson,
Akureyri 1925), 10.
39 Karl Marx, „The Law on Thefts of Wood“ í Selected Writings, ritstj. D. Mc-
Lellan (Oxford University Press, Oxford 1977; fyrst útgefið 1842), 415-88.
40 Henry George, Progress and Poverty (Robert Schalkenbach Foundation, New
York 1951; fyrst útgefið 1880).