Skírnir - 01.04.2000, Blaðsíða 138
132 INGRID U. OLSSON OG ELSA G. VILMUNDARDÓTTIR SKÍRNIR
fyrstu árum C-14 aldursgreininga um að geislavirkni andrúms-
loftsins sé alls staðar og alltaf sú sama?
Það kann að vera áhugavert að geta þess að undirbúningsmeð-
ferð beggja sýnanna frá Tjarnargötu 4 í Reykjavík - tveggja
fyrstu „landnámssýnanna“ sem voru aldursgreind í Uppsölum -
hófst 13. desember 1967 og 25. ágúst 1969. Þorleifur Einarsson
skrifaði um fyrra sýnið (sem var sent 4. janúar 1967), að ef til vill
geti það veitt upplýsingar um hvenær landnámið hófst, og lét
hann fylgja með niðurstöður greiningar nr. K-940: 1340±100 14C
ár frá rannsóknarstofunni í Kaupmannahöfn. I bréfi 13. nóvem-
ber 1968 upplýsti hann að C-14 aldursgreiningarnar virtust sýna
of háan aldur samanborið við Landnámu og ártalið 874 e. Kr.,
sem Ingrid U. Olsson hafði ekki heyrt talað um fyrr. Þetta gerð-
ist þegar verið höfðu umræður í u.þ.b hálfan áratug, bæði í Upp-
sölum og annars staðar í heiminum, um að svæðisbundinn munur
á C-14 geislavirkninni væri mögulegur.
Enn ein vísbending um hnattrænan mun í jafngömlum sýnum,
sem eru í jafnvægi við andrúmsloftið, kom fram árið 1966 þegar
Kigoshi og Hasegawa greindu frá minni 14C styrk í trjám en
menn höfðu mælt í Bandaríkjunum (sjá síðar). Ingrid U. Olsson
skýrði frá þessu (31: 4). I sama riti stendur (31:3): „Mælingar á ár-
hringjum trjáa frá Suður-Ameríku benda samt sem áður til
nokkru minni virkni en jafnaldra árhringir frá Norður-Ameríku,
sumpart samkvæmt mælingum frá Groningen í Hollandi og sum-
part samkvæmt mælingum frá Uppsölum", og neðar á sömu
blaðsíðu stendur: „Það kann að reynast mjög áhugavert að rann-
saka breytileikann, bæði í tíma og rúmi.“ Þessar gömlu mælingar
verða ræddar frekar síðar í þessari grein.
B. C-14 aldursgreiningar á trjáhringjum á sjöunda áratugnum
Kigoshi og Hasegawa (32, s. 1071) skrifuðu: „14C styrkur viðar-
sýna frá Yaku Island er kerfisbundið um 0,5-1% lægri en í viðar-
sýnum frá Arizona og Kaliforníu, sem Damom og félagar mældu.
Munurinn kann að stafa af eðlismun loftsins yfir þessum tveimur
svæðum. Heitt sjávarloft, sem er ríkjandi á Yaku Island, kann að
hafa lægri 14C styrk heldur en meginlandsloftið, sem er ríkjandi
yfir Arizona. Því veldur snerting sjávarloftsins við yfirborð sjáv-