Skírnir - 01.04.2000, Blaðsíða 232
226
AUÐUR ÓLAFSDÓTTIR
SKÍRNIR
Með þetta í huga hefur Hannes valið ákveðna táknmynd fyrir listina.
Það er enska hugtakið „decoy“ sem útleggst „tálbeita“ á íslensku. Tál-
beitur, stundum nefndar lokkfuglar, eru útskornir fuglar, oft litríkir og
fagrir í formi, sem veiðimenn nota til að draga að lifandi fugla, til að
lokka bráðina.8 Endurnar eru komnar inn í myndmál Hannesar úr al-
þýðlegu handverki frá mið- og austurfylkjum Norður-Ameríku og
Kanada. Endur hans hafa þó ekki notagildi líkt og fyrirmyndir þeirra
vestanhafs, enda ekki eftirgerðir raunverulegra anda, heldur hreinræktuð
afurð skapandi ímyndunarafls. Þær eru gervi-endur í tvöföldum skiln-
ingi þess orðs, eru gervi-gervi-endur eða táknmyndir eftirlíkinga. Málið
snýst ekki eingöngu um það að sjá listaverk, heldur þarf myndlistarverk
að gera sig sýnilegt, vekja á sér athygli, í því er fólgin tálbeita listarinnar,
hið erótíska aðdráttarafl hennar.
Tálbeitum Hannesar er því ekki ætlað að lokka aðra fugla til fylgi-
lags, heldur áhorfandann sjálfan til samneytis við listina. Þær eru tákn-
myndir fyrir aðdráttarafl listaverksins og hið erótíska samband milli
listar og almennings. Tálbeitur ginna ögn sín með því að vekja losta,
fórnarlambið laðast að tálbeitunni og er leitt í gildru, táldregið. Að vekja
losta eða þrá, draga að sér mótleikara, er í hnotskurn inntak erótísks
leiks.
Verkið Decoy frá 1988 er eins konar erkitýpa eða frummynd þessarar
listhugmyndar. Á næstu árum fjölgar útgáfum af tálbeitunni í list Hann-
esar og allar eru þær könnun á mismunandi hliðum á því aðdráttarafli
sem listin hefur. Eins og raunar flest verka listamannsins, vitna þær um
ljóðrænt hugmyndaflug og sérstæða kímnigáfu. Eitt þessara verka er
„Hönnunaröndin“ (Decoy III frá 1994), stílfærður fugl sem settur er
fram sem hlutur er hægt er að fjöldaframleiða; annað er „Rándýrið",
(.Decoy II frá 1991), fugl sem hefur búk andar en hvassan gogg þess sem
veiðir. Nýjasta tálbeitan er Decoy IV frá árinu 1999. Þá hefur listamaður-
inn sjálfur brugðið sér í líki tálbeitunnar í gjörningum sínum, yfirleitt í
tengslum við opnanir á eigin sýningum.
Formrænt séð er Decoy öndin erótíkin sjálf holdi klædd og vísar sem
slík bæði til kynfæra karls og konu. Stél fuglsins hefur ummyndast í rana
eða reðurtákn sem vindur sig utan um sívalan háls dýrsins, sem sjálfur
gengur upp í gegnum ranasnöruna. Aðdráttarafl tálbeitunnar býr þó ekki
eingöngu í formi hennar, heldur notar listamaðurinn virðinguna fyrir
velunnu handverki til að lokka áhorfandann. Handverkið sjálft er því ein
aðaltálbeita verksins:
Menn verða að sverja sig í ætt við eitthvað sem er viðurkennt, og eitt
af því er handverkið, þetta saklausa, græskulausa, hjartahreina hand-
8 Það er engin tilviljun að þekkt alþjóðlegt fyrirtæki kynnir framleiðslu sína,
kvensokkabuxur og undirföt, undir vörumerkinu Decoy.