Skírnir - 01.04.2000, Blaðsíða 156
SKÍRNISMÁL
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
Rökin fyrir veiðigjaldi:
Greining og gagnrýni
Náttúran er
vor milda móðir
sem dýrar gjafir
gaf oss.
En ríkið er
vor eldri bróðir
sem tók þær allar
af oss.
Piet Hein (íþýð. Kristjáns Eldjáms)
RÖkin fyrir sérstakri skattlagningu eða gjaldtöku í íslenskum
sjávarútvegi hafa breyst talsvert, frá því að Bjarni Bragi Jónsson
setti þau fyrstur fram á miðjum áttunda áratug.1 Hann og fleiri
hagfræðingar bentu þá á, að aðgangur að fiskimiðum væri ókeyp-
is eða nær ótakmarkaður, þótt fiskistofnar væru takmörkuð gæði.
Það ylli ofveiði. Nauðsynlegt væri því að verðleggja aðganginn að
Islandsmiðum, en það yrði best gert með auðlindaskatti, sem rík-
ið innheimti. Auðlindaskattur var samkvæmt þeirri hugmynd
stjórntæki í sjávarútvegi. Sem kunnugt er var ráðum Bjarna Braga
og skoðanabræðra hans ekki fylgt, heldur myndaðist hér kerfi
ótímabundinna, framseljanlegra aflakvóta. Nú halda þeir Gylfi Þ.
Gíslason, Þorsteinn og Þorvaldur Gylfasynir og fleiri því fram,2
að þjóðin eigi nytjastofna á Islandsmiðum og útgerðarmönnum
1 Bjarni Bragi Jónsson, „Auðlindaskattur, iðnþróun og efnahagsleg framtíð ís-
lands“ í Fjármálatíðindum (22. árg. 1975), 103-122.
2 Gylfi Þ. Gíslason, Fiskihagfraði (Iðunn, Reykjavík 1991), 137 o. áfr.; Þor-
steinn Gylfason, „Fiskur, eignir og ranglæti“ í Réttheti og ranglœti (Mál og
menning, Reykjavík 1998), 109-130; Þorvaldur Gylfason, „Hagkvæmni og
réttlæti” í Stjórn fiskveiða og skiptingu fiskveiðiarðsins (Sjávarútvegsstofnun
Háskólans, Reykjavík 1992), 15-29. Þeir Gylfi og Þorvaldur hafa einnig skrif-
að fjölmargar greinar í Morgunhlaðið málstað sínum til stuðnings, og hefur
Þorvaldur safnað greinum sínum saman í fimm bókum, Almannahagur (Hið
íslenska bókmenntafélag, Reykjavík 1990), Hagjrœði, stjórnmdl og menning
(Hið íslenska bókmenntafélag, Reykjavík 1991), Hagkvæmni og réttLeti (Hið
íslenska bókmenntafélag, Reykjavík 1993), Síðustu forvöð (Háskólaútgáfan,
Reykjavík 1995) og Viðskiptin efla alla dáð (Mál og menning, Reykjavík
1999).
Skírnir, 174. ár (vor 2000)