Skírnir - 01.04.2000, Blaðsíða 171
SKÍRNIR
RÖKIN FYRIR VEIÐIGJALDI
165
hefðu kvóta sína eða stundað veiðar í krafti upphaflegrar úthlut-
unar einnar. Mönnum væri með öðrum orðum refsað fyrir þá
eiginleika, sem helst ætti að verðlauna þá fyrir!
Hagkvœmni og réttlœti
I þessu sambandi ber að fara nokkrum orðum um sjónarmið, sem
Þorvaldur Gylfason setur fram fyrir veiðigjaldi:27
Hugsum okkur til einföldunar, að ávextir allrar hagræðingar rynnu
óskiptir til Imeldu Marcos. Nú vaknar spurning: Hefðu hagfræðingar
brennandi áhuga á að kanna kosti og galla frjálsra og heilbrigðra við-
skiptahátta, ef viðskiptahagurinn rynni allur til Imeldu? Hefðum við
mikinn hug á að rannsaka hagræðingarkosti í ríkisrekstri, ef forsetafrúin
fyrrverandi á Filippseyjum fengi að hirða ávinninginn óskiptan? Hefð-
um við hug á að leita leiða til að draga úr verðbólgu og atvinnuleysi, ef
Imelda ein nyti góðs af því öllu og aðrir þyrftu að gera sér að góðu þá
mola, sem hrytu af borði hennar? Hefðum við yfirhöfuð nokkurn áhuga
á hagfræði við þessar kringumstæður? Ég leyfi mér að efast um það. ...
Þessu einfalda dæmi er ætlað að skýra þá skoðun mína, að hagfræðingar
geta ekki með góðu móti leitt réttlætissjónarmið hjá sér undir öllum
kringumstæðum.
Þorvaldur virðist jafna Imeldu Marcos saman við íslenska útgerð-
armenn: Óþolandi sé, að þessir aðilar einir njóti hagsins af endur-
bótum á hagkerfinu. En ólíku er saman að jafna. I fyrsta lagi er
Imelda Marcos einmitt stjórnmálamaður, sem kunnur er fyrir
spillingu. Dæmi af henni styrkir lítt þá skoðun, að taka ætti fisk-
veiðiarðinn af íslenskum útgerðarmönnum og afhenda hann
stjórnmálamönnum. í öðru lagi er dæmið villandi af þeirri ástæðu,
að Imelda Marcos er aðeins ein, en í íslenskum sjávarútvegi njóta
allir hluthafar í útgerðarfyrirtækjum fiskveiðiarðsins. Beinir hlut-
hafar eru nú 10-20 þúsund talsins, en óbeinir hluthafar eru miklu
fleiri, því að lífeyrissjóðir og sveitarfélög eiga víða hluti í útgerð-
arfyrirtækjum.
Af þessum ástæðum er dæmi Þorvalds Gylfasonar vanhugsað.
En það gefur tilefni til að leita svara við mikilvægri spurningu:
27 Þorvaldur Gylfason, „Hagkvæmni og réttlæti“ í Stjórn fiskveiða og skiptingu
fiskveiðiarðsins, 16.