Skagfirðingabók - 01.01.1967, Blaðsíða 9
FORMÁLSORÐ
NÚ við útkomu 2. árgangs Skagfirðingabókar vill ritstjórnin
grípa tækifærið og þakka heilshugar öllum þeim, sem tóku ritinu vel í
upphafi, ekki sízt fjölmörgum áskriftasafnendum, sem lögðu því ó-
eigingjarnt liðsinni, sýslunefnd Skagafjarðarsýslu, er veitti Sögufélag-
inu 10 þús. króna útgáfustyrk 1967, en helmingur hans gekk til Skag-
firðingabókar, og Kristjáni C. Magnússyni á Sauðárkróki, sem ekki
aðeins hefur sinnt ýmiss konar kvabbi um útvegun ljósmynda, heldur
greitt áskriftargjald sitt fjórfalt hærri upphæð en tilskilin var.
Þótt útgáfukostnaður allur hafi aukizt, frá því sem var 1966, vegna
dýrtíðar, er ætlunin að halda áskriftargjaldinu óbreyttu að þessu sinni,
og eins þó arkafjöldi hvers heftis hafi farið fram úr því, sem verð-
lagningin miðaðist við (10 arkir, 160 blaðsíður). Fjárhagurinn er að
vísu knappur, og kemur það niður þar, sem sízt skyldi, á höfundum
- eða rétthöfum efnis, sé um þá að ræða - svo greiðslur til þeirra
verða smávaxnari en sanngjarnt hlýtur að teljast. Sú er því von rit-
stjórnar, að föstum kaupendum fjölgi enn verulega, þannig að útgáfan
strandi ekki á fjárskorti, og væntir hún atbeina sem flestra við út-
vegun nýrra áskrifenda.
Þessi árgangur Skagfirðingabókar er langtum síðbúnari en til stóð.
Því valda eingöngu ófyrirsjáanlegar tafir í prentsmiðjunni. Meginhluti
efnis var afhentur til setningar í júlímánuði, og hefði því ritið birzt
á réttum tíma, ef ekki hefði til þeirra komið. Eru kaupendur vinsam-
legast beðnir afsökunar á þessum drætti. En þrátt fyrir hann stefnir
ritstjórnin fast að því marki að koma 3. árgangi (1968) til kaupenda
nú fyrir næsm jól, svo útgáfutími ritsins raskist ekki varanlega við
þær tafir, sem orðið hafa. Nægjanlegt efni er þegar til í 3. árgang.
7