Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Síða 10

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Síða 10
S va n h i l d u r Ó s k a r s d ó t t i r 10 TMM 2014 · 1 Í þriðja lagi eru svo sýningarmálin í uppnámi. Sýningar fyrir almenning eru úrvalsleið til þess að miðla gögnum stofnunarinnar og rannsóknum á þeim. Áður fyrr var handritasýning í Árnagarði en sýningaraðstaðan þar var léleg. Ný handritasýning var sett upp í Þjóðmenningarhúsinu fyrir rúmum áratug en henni hefur nú verið lokað vegna breyttra áforma um nýtingu hússins. Með því að handritasýningin færðist úr Árnagarði á sínum tíma, rýmkaðist ögn um aðra starfsemi þar. Til lengdar er það þó óheppilegt fyrir Árnastofnun að missa sýninguna úr sínum húsakynnum að því leyti að þar með rofna hin eðlilegu tengsl milli sýningar- og fræðastarfs. Almenningur tengir sýninguna ekki við vettvang rannsóknastarfsins og fræðimennirnir slitna úr tengslum við miðlunina. Handritasafn Árna Magnússonar öðlaðist alþjóðlega viðurkenningu árið 2009 þegar það var tekið upp á varðveisluskrá uNESCO „Minni heimsins“ (Memory of the World Register). Ætti það ekki að vera sjálfsagður metnaður Íslendinga að búa þannig að sínu merkasta safni að það geti tekið á móti áhugasömum gestum víða að og á öllum aldri? Veruleikinn núna er að safnkennari Árnastofnunar stundar farkennslu að 19. aldar hætti til þess að íslensk börn fari ekki á mis við fræðslu um hand- ritin. Skólafólk erlendis frá og allur almenningur verður að sætta sig við að sýning er ekki í boði. Er það boðlegt? Í borg sem auk þess hefur verið útnefnd bókmenntaborg uNESCO, ekki síst með tilvísun til okkar merku fornbókmennta? Ferðamönnum er mokað inn í landið, og um fjórðungur þeirra kemur vegna áhuga á sögu þess, en í stað þess að bjóða þeim að skoða krúnudjásnin og taka af þeim sanngjarnan aðgangseyri eru dýrgripirnir læstir niðri – handritin geta beðið, við sýnum þau seinna. Með viðurkenningunni frá uNESCO var lögð áhersla á að handritin eru menningarverðmæti á heimsvísu. Íslendingar og Danir varðveita þau fyrir heiminn. Því fylgir einnig sú skylda að gera þennan arf aðgengilegan heims- byggðinni og í því felst bæði stafræn miðlun og sýningarhald. Þeirri skyldu geta Íslendingar ekki einfaldlega ýtt yfir á okkur á Árnastofnun með því að segja: Finniði útúressu. Við hlökkum svo sannarlega til að einhenda okkur í nútímalega miðlun en við þurfum aðstæður til þess. Og við þurfum fé. Dýrmætt fræðasamfélag Sýningar- og miðlunarmál eru semsé sérkapítuli og í ólestri. Samskiptin við almenning eru þó ekki og verða aldrei nema einn þáttur í starfsemi Árnastofnunar – aðrir þættir snúa að vísinda- og varðveislustarfinu og þar er horft út í heim. Sú hlið starfseminnar blasir ekki við í íslenskum hvers- dagsleika en það er óhemju mikilvægt að fólk skilji að stofnunin hefur ekki bara skyldur gagnvart íslenskum almenningi, hún rækir líka skyldur sem Íslendingar hafa gagnvart fræðunum og heiminum. Árnastofnun er rannsóknarstofnun og fræðasvið hennar er alþjóðlegt – íslensk fræði eru stunduð víða um heim og starfsmenn stofnunarinnar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.