Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 13
Á t t u e l d ?
TMM 2014 · 1 13
Sigurð Nordal. Þær voru hugsaðar til þess að ráða mætti ungt fræðafólk
að stofnuninni í vissan tíma, eins konar nýdoktorastöður til eflingar bæði
stofnuninni, fræðunum og ungu vísindafólki. Eitt af því sem ætti nefnilega
að vera þjóðhollum stjórnmálamönnum umhugsunarefni er hvernig tryggja
megi að gott námsfólk leggi fyrir sig íslensk fræði. Eins og málum er háttað
eru engir hvatar til þess – engir styrkir eru í boði til þess að ýta undir slíkt
námsval og líkur á starfi að loknu doktorsprófi sáralitlar; launakjörin lítt
aðlaðandi. Það er skemmst frá því að segja að nýju rannsóknarstöðurnar
hurfu í Hruninu, ekki hefur verið hægt að ráða í aðrar stöður sem hafa losnað
og örlög húsbyggingarinnar má sjá í Grunni íslenskra fræða við Suðurgötu.
Danir! Takið þennan kaleik frá okkur (aftur)
Tölum um Húsið. Þegar Landssíminn var seldur árið 2005 var tilkynnt að
einum milljarði af andvirði hans yrði varið til þess að reisa Hús íslenskra
fræða. Símapeningarnir reyndust aldrei hafa eignast jarðneska tilveru, þeir
voru og eru enn í húfu guðs (Mammons, væntanlega). Og Húsið er órisið
og hefur ekki einu sinni fengið brúklegt nafn en það hefur þó öðlast tilvist í
umræðunni: Það er sumum orðið tákn um Gæluverkefni. Þetta má glöggt sjá
í umræðum um framkvæmdina á Alþingi í fyrravetur þar sem byggingunni
var markvisst stillt upp andspænis fjárframlögum til heilbrigðisþjónustu og
löggæslu. Hér talar Birgir Ármannsson:
Þetta er ekki góð fjárfesting að mínu mati. Þetta er ekki verðmætaskapandi fjár-
festing í þeim skilningi sem ég legg í þau orð. Ég held að allir séu sammála um það
að æskilegt væri og gleðilegt ef við hefðum efni á því á þessari stundu að hefja stóra
og kostnaðarsama byggingu undir starfsemi sem tengist íslenskum fræðum. Það
væri voðalega gaman, en á þeim tíma þegar við Íslendingar erum í mesta basli með
að borga lögreglumönnum laun, hafa nægilega marga hjúkrunarfræðinga í vinnu
og svo má lengi telja þá er ég þeirrar skoðunar að við höfum ekki efni á því að fara
í lúxusverkefni af þessu tagi. Því miður. Þetta er að mínu mati dæmi um ranga for-
gangsröðun.8
Ásbjörn Óttarsson tók enn dýpra í árinni:
Hvað skyldi vera gert þegar búið er að loka heilsugæslustöðvunum og deildum á
Landspítalanum? Á þá að fara með sjúklingana í hús íslenskra fræða? Er það til-
fellið? Það sést í raun og veru og endurspeglast hér hversu veruleikafirringin er oft
og tíðum mikil þegar menn eru að fara yfir þá hluti. Það er auðvitað ekkert gagn
að því að byggja hús íslenskra fræða. Það er engin skynsemi og alger vitleysa og
bruðl. Á sama tíma er verið að vega að grunnþjónustu og grunnstoðum landsins.
Forsvarsmenn Landspítalans og starfsfólk hans á heiður skilið fyrir að hafa staðið
af sér niðurskurðinn sem hefur orðið á stofnuninni og allar aðrar heilbrigðisstofn-
anir á landinu hafa líka staðið sig einstaklega vel. En svo þegar rofar til að mati hv.
stjórnarliða fara menn í svona gæluverkefni sem er auðvitað ekkert annað bruðl og
vitleysa og þvæla.9