Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Side 43
N á t t g a n g a í s t r í ð s m y r k r i
TMM 2014 · 1 43
Þá hafði stríðið milli uppreisnarsveita Tamíla í norður- og austurhluta
eyjunnar og stjórnarhers Sinhalesa-stjórnarinnar í Colombo staðið með
hléum í hálfan þriðja áratug. upphaflega höfðu ungir Tamílar gripið til
vopna í nyrsta héraði landsins til að mótmæla áratuga kúgun Sinhalesa, að
eigin sögn. Sinhalesar eru langfjölmennasta þjóðarbrotið á Srí Lanka og eru
búddatrúar. Tamílar eru ráðandi í norðri og austri og eru hindúatrúar. Auk
mismunandi trúarbragða tala Tamílar og Sinhalesar alls óskyld tungumál.
Þegar vopnahléið frá 2002 hafði formlega verið í gildi í fjögur ár fækkaði
í sveitunum og urðu Norðmenn og Íslendingar einir eftir. Ástæðan var sú
að Danir, Finnar og Svíar höfðu orðið að hætta þegar Tamílatígrar drógu
til baka heit sitt um að skerða ekki hár á höfði þeirra. Afstaða Tígranna
til þessara Norðurlandabúa breyttist í kjölfar þess að skömmu áður höfðu
stjórn völd í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi tekið þátt í því, í sameiningu
með hinum ESB-ríkjunum, að skilgreina LTTE, herská frelsissamtök Tamíla,
opinber lega sem hryðjuverkasamtök. Vissulega voru bardagaaðferðir Tamíla-
tígranna, eins og þeir voru nefndir, oft ógeðfelldar, en þeir sögðust vera í
nauðvörn. Væri sprengjum varpað úr lofti á almenna borgara á þeirra svæði
gætu stjórnvöld í Colombo ekki kvartað ef almenningsvagn væri sprengdur
í suðrinu. Þetta var hin kalda og raunalega röksemdafærsla stríðsins.
Þótt vopnahléið væri á stundum gloppótt og enn ættu sér stað með reglu-
legu millibili hörmuleg og blóðug atvik, hafði ástandið þó skánað til mikilla
muna frá þeim tíma þegar hreint stríð ríkti. Afar skiptar skoðanir voru um
gagnsemi vopnhléssamningsins meðal stjórnmálamanna í höfuðborginni
í Colombo, en þeir herskáustu bentu á að enn væru framin launmorð á
Sinhalesum í austrinu og að enn væru háðar sjóorrustur með reglulegu
millibili. Voru þetta þó fjarlægir atburðir en öllu alvarlegra þótti að nýlega
hafði kona ein sprengt sig í loft upp á lögreglustöð í Colombo. Hún var
svokallaður Svartur tígri, en svo voru sjálfsmorðsliðar nefndir og hafði dregið
háttsettan lögreglustjóra og þrjá óbreytta lögregluþjóna með sér í dauðann.
Þetta var vissulega skelfilegt. En þrátt fyrir einstaka hörmungaratburði sem
slíka varð ekki litið hjá því að eiginleg stríðsátök milli stjórnarhersins og
Tamílatígra lágu að mestu niðri.
***
Höfuðvígi Tamílatígra var bærinn Kilinochchí sem lá á miðri sléttu norðar-
lega á Srí Lanka í fremur fámennu héraði. Venjulega óku friðargæsluliðar
upp til Kilinochchi landleiðina frá Colombo til Anuradhapura, hinnar
fornu höfuðborgar Sinhalesa, en þar hafði byggst upp talsverð ferðaþjónusta
með lúxushótelum fyrir erlenda ferðamenn. Á þessu svæði er hinn svo-
nefndi gyllti þríhyrningur þar sem getur að líta fornar borgarrústir, afar
tilkomumiklar, bæði í Anuradhapura og heldur austar við hina fornu
höfuðborg Polonnaruwa, og virki frá fimmtu öld uppi á hinu helga fjalli