Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Síða 86

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Síða 86
S t e fá n S t e i n s s o n 86 TMM 2014 · 1 vegar fékk ég vitrun þegar ég fann bókina Homeric Greek í Dillons skammt frá Euston Square í London fjórum dögum eftir að Saddam Hussein fór inn í Kuwait 1990. Það var í ágústbyrjun. Þar með var teningunum kastað. Grískukennslan í þeirri bók byggðist á fyrsta þætti Ilíonskviðu en hann er talinn sjálfstætt snilldarverk í heimsbókmenntunum einn út af fyrir sig. Ég rauk upp á hótelherbergi með bókina og hóf að glósa upphaf Ilíons- kviðu á brúnan umbúðapappír. Allt heila glósuverkið sendi ég Gyrði Elías- syni í pósti. Ég held að Gyrðir skilji ekki enn í dag hvern fjandann ég var að fara. En hann átti seinna eftir að kynnast konu af kynkvísl Sveinbjarnar Egilssonar svo það kom vel á vondan. Síðan fór ég til ungverjalands að heimsækja frænku mína og ferðaðist með henni til Rúmeníu. Þegar þau hjónin losnuðu við mig gáfu þau út bók sem heitir Úr álögum. Næstu árin var vaktakerfið í Búðardal jafn hagstætt og það hafði verið árin á undan. Ég gat því auðveldlega skotist suður í heimsborgina aðra hverja viku og setið í tímum í grísku og seinna latínu uppi í Háskóla. Það kallaði dóttir mín þá fimm ára að ég væri í Grískuskólanum. Þegar litli bróðir hennar sem nú er stór var að gnísta tönnum klagaði hún og sagði: Pabbi hann var að gríska tönnunum. Þarna sat ég í tímum hjá snillingum í stafrófsröð á borð við Kolbein Sæmundsson, Sigurð Pétursson og Svavar Hrafn Svavars- son. Latínutímar hjá Teiti Benediktssyni eru lífsreynsla sem ég hefði ekki viljað missa af. Mest var kennt í Odda en einnig í Lögbergi og Aðalbyggingu. Eitt sinn gengum við út fyrir dyr Aðalbyggingar í frímínútum. Það voru vesturdyr sem vísa upp að Háskólabíói. En þá var tún milli Aðalbyggingar og Íþróttahúss þar sem nú er Háskólatorg. Þarna fuku gleraugun af Svavari út í veður og vind og hafa ekki sést síðan. Ég veit aldrei hvort það var sakir þar- afleiðandi sjónleysis að hann gaf mér 9,5 í Ræðumönnum um vorið. Svavar var fyrsti kennarinn sem ég hafði sem var 8 árum yngri en ég. Þessi einkunnagjöf var að mörgu leyti lýsandi fyrir mig í klassísku deildinni meðan læknadeild hafði meira byggst upp á einkunninni 7,5. Í klassíkinni fékk ég aftur á móti 7,0 ef ég fékk mér í glas fyrir próf. Það var eins og vínandi seinkaði ákvarðanatöku milli prófhluta. Í læknadeild hafði ég ekki verið farinn að fá mér í glas að gagni fyrir próf. Ég veit ekki hvernig það hefði endað. Sjálfsagt með útskrift. En síðan liðu árin. Ég skemmti mér við sérfræðipróf í geðlækningum í London engum til gagns og nærðist þau árin mest á reyk og áfengi. Þetta lifibrauð náði hámarki á tíunda áratug tuttugustu aldar og þá samsamaði ég mig best Benedikt Gröndal. Ég áleit mig drykkfelldan misheppnaðan fræðimann og skáld sem enginn skildi eins og Gröndal. Hvorugur hefur þó sennilega verið alveg misheppnaður þegar upp var staðið. Einhverjir muna eftir rugluðum blaðagreinum, alls kyns nöldri, svo kollega á geðdeildinni spurði mig hvort ég hefði farið í maníu eins og föðurættin. Nei, ég hafði öllu fremur verið að gera lyfjatilraunir á sjálfum mér eins og móðurættin. Frjálsleg notkun spilliefna getur gert mann vankaðan eins og maður sé með vatnseitrun. Ég hefði hæglega getað orðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.