Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Síða 87

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Síða 87
H e r ó d ó t u s i f y l g t ú r h l a ð i TMM 2014 · 1 87 vesalingur vikunnar í DV. Ef ég hefði lent í Sjálfstæðu fólki hjá Jóni Ársæli hefði hann fengið stóra vælutóninn, þennan sem Pétur Jóhann hermir svo vel eftir. Það er heldur ekki gott að vera alltaf hress, eins og á fjasbók. Þess vegna helgaði ég Gilgameskviðu mína minningu Gröndals 1996. Enginn tók eftir þeirri útgáfu og aðeins tveir keyptu eintak svo ég viti. En eftir að ég sagði bless við geðlækningar og gekk þar að auki til liðs við Frímúrararegluna breyttust allar víddir í sálarlífinu. Frímúrarastarfið stillir manni dálítið upp við vegg hvaða karakter maður er, hvaðan maður kemur og hvern djöfulinn maður þykist vera að fara, þ.e.a.s. ef maður nennir að hlusta og hugsa. En um leið og ég varð spakari með víni varð ég verri með hitaeiningum. Því fylgdi síhækkandi aldur og líkamsþyngdarstuðull. Aldurinn hefði hugsanlega fylgt hvort sem var og kvíði er samkomulagsatriði. Reyknum hafði ég hætt þegar Heimir bróðir dó. Það er því kannski engin tilviljun að ég helga nýju þýðinguna föður Gröndals sem leit með köflum á sig sem einhvers konar bindindisfrömuð öfugt við mig og varð það honum óbeint að aldurtila. Í dag er mér einna helst legið á hálsi fyrir líkamsþyngdarstuðul. Þessi umræða getur ekki haldið áfram án þess að minnst sé á aukafag. Þegar ég bjó í Bretlandi heyrði ég um menn sem tóku tvö háskólafög, annað til að vinna við, hitt fyrir tómstund. Á fyrsta áratug þessarar aldar staldraði ég við í tónlistarskóla til að sjá hvort ég ætti að verða tónskáld í hjáverkum eins og pabbi. Ég hafði jú alltaf kosið Alþýðubandalagið eins og pabbi, gengið hratt úti á götu eins og pabbi og reynt að rita greinargóðan stíl eins og pabbi. Kennurum Tónlistarskólans í Reykjavík tókst af einstakri þrautseigju og þolinmæði að leiða mér fyrir sjónir að þar ætti ég ekki að vera. Það tók þrjú ár. Samt var það ekki ætlun þeirra. En ég hafði sem betur fór nægilegt innsæi til að skilja þau duldu skilaboð sem þeir vissu ekki að þeir voru að senda út allan tímann. Eða vissu þeir það kannski? Mest þakka ég endurlausnina Guðmundi tónskáldi Hafsteinssyni. Og þarna hafði ég í fyrsta sinn kennara sem var 15 árum yngri en ég. Það var Þórður tónskáld Magnússon, sonur síðasta þjóðskáldsins. Þarna var ég farinn að undirbúa pistil í Læknablaðið. Það skartaði um þessar mundir ritröð þar sem kollegarnir fjölluðu um aukafög sín, t.d. hestamennsku eða vínsmökkun. Hestamennska er göfugasta form úreltrar samgöngutækni, vínsmökkun er göfugasta form drykkjusýkinnar. Ég ætlaði að skrifa um leit mína að aukafagi, villuráf milli tónsmíða og klassískra fræða. En skömmu eftir að ég færði mig yfir í bráðalækningar var öll rit- stjórn Læknablaðsins rekin á einu bretti. Ég man ekki lengur hvort hún hafði sagt eitthvað ljótt um Kára Stefánsson og verið rekin þess vegna eða hvort hún hafði sagt eitthvað fallegt um Kára Stefánsson og verið rekin þess vegna. Alltént var ráðin ný og gáfaðri ritstjórn sem var líklegri til að segja allt pólitískt kórrétt um Kára Stefánsson. Sú ritstjórn henti út greinaflokknum um aukafög svo ég varð að sleppa því að skrifa í hann. Nú var úr vöndu að ráða. Ég fór að taka helgarvaktir á Hvolsvelli og las
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.