Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 123

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2014, Page 123
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2014 · 1 123 vægt í ljósi þess að saltfiskur verður með tímanum verðmætasta útflutningsafurð landsins. Rydberg lagði að auki til fjölda umbótatillagna í landbúnaðarmálum sem flestar gengu út að auka ræktun á Íslandi, hann vildi jafnvel kanna hvort hægt væri að rækta tóbak á Íslandi, en lagði líka til þangvinnslu, brennisteins- vinnslu og fleira. Þar strandaði, að því er virðist, á andstöðu íslenskra embættis- manna – gömul saga og ný. Niels Ryd- berg var auk þessa lykilmaður í að byggja upp eitt stærsta fyrirtæki Dana á þessum tíma og síðar, Det asiatiske Kompagni, og hagnaðist vel á þrælasöl- unni frá Indíum – sem er sérstök og afar áhugaverð hliðarsaga í verkinu. Það er reyndar Rydberg sem ályktar sem svo að um það bil tvö þúsund manns hafi lifi- brauð af Íslandsverslun í Kaupmanna- höfn, en þá voru íbúar borgarinnar í kringum sextíu þúsund. umfjöllunin um dönsku kaupmenn- ina, sem höndluðu hér á Íslandi á 19. öld en voru þó búsettir í Kaupmannahöfn, er einnig bæði greinargóð og lifandi. Margir þeirra skildu eftir sig varanleg spor í sínu héraði, þótt verið hafi mis- jafnlega þokkaðir, eins og gengur. Hér má til dæmis nefna þá Örum & Wulff sem höfðu sína starfsemi einkum á aust- anverðu landinu og P.C. Knudtzon sem hafði mest umsvif á sunnanverðu Íslandi og var mikill stórgrósser og vel tengdur inn í konungshöllina, var meðal annars fylgdarmaður Friðriks arfaprins, síðar Friðriks VII. konungs, í afbötun- arferðinni frægu 1834 sem prinsinn var sendur í til Íslands vegna sinna drykkju- og kvennamála. P.C. Knudtzon stóð líka fyrir ýmsum framfaramálum, lét meðal annars reisa vindmyllur í Reykjavík, flutti inn Bernhöft bakara og reisti undir starfsemi hans Bernhöftstorfu- húsin sem enn standa í Bakarabrekk- unni, sem svo var kölluð (nú Banka- stræti). En hin hliðin á málum er að Knudtzon var sakaður um einokun, yfirgang og ólöglegt samráð, meðal ann- ars af Jóni Sigurðssyni. Þannig gengur það til í heiminum … Hér má líka minnast á Gudmannsverslun og Höepfn ers- á Akureyri, Clausensverslun í Ólafsvík, Sören Jacobsen á Skaga- strönd, Tang á Ísafirði, Thomsens Mag- asín í Reykjavík … og þannig mætti lengi telja. Einnig má nefna Íslendinga sem láta til sín taka í versluninni, svo sem Gísla Símonarson sem sagður var vellauðugur þegar hann lést sviplega í vagnsslysi í Höfn árið 1837, Bjarna Sívertsen í Hafnarfirði, Pétur Thor- steinsson á Bíldudal og fleiri. Sérstaka athygli vakti þáttur um Ólaf Thorlacius á Bíldudal sem vann sig upp úr engu, virðist hafa verið dugmikill og vinsæll, starfrækti verslun bæði í Bíldudal, Stykkishólmi og Ísafirði, og auðgast svo verulega á því að flytja út saltfisk beint til landa við Miðjarðarhaf, áður en hann deyr sviplega af slysförum í Kaup- mannahöfn árið 1815. Við alla þessa verslunarsögu má svo bæta því að mörg hús þessara umsvifa- miklu Íslandskaupmanna standa enn í Kaupmannahöfn; flest í Nýhöfn, við Strandgade eða í Kristjánshöfn. Sam- hengið í sögunni verður þannig ljóslif- andi fyrir lesanda, þökk sé ríkulegri myndskreytingu bókanna og koma ljós- myndirnar úr ýmsum áttum, bæði frá fyrri tíð en einnig úr nútímanum. Mynd- irnar eru eitt hið skemmtilegasta við þetta verk og full ástæða til að hrósa myndaritstjórn og þeirri ákvörðun að myndskreyta verkið svo myndarlega, þótt þær geri verkið helmingi umfangsmeira (og dýrara) en ella. Á hinn bóginn má finna að því að myndatextar eru stund- um bein endurtekning á því sem fram kemur í texta, í stað þess að vera nýttir fyrir aukafróðleik sem færa út verkið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.