Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Síða 10
Og þú verður ambátt — undirgefin,
um þínar fræg'ðir verður hljótt.
Það heyrast ei framar Hallgrímsstefin,
af hryggð þú deyrð og gleymist skjótt.
Og enginn þekkir þitt sögusafn,
því „Salka Valka“ fær rússneskt nafn.
Einn myndi kannske um þig skrifa;
þér yrðu þau laun og huggun nóg —.
Ef Drottinn Kamban léti lifa
hann lyftir þér upp úr gleymsku þró,
og hnýtir þér þann heiðurskrans,
þú hafir „farið í rúm til manns“.
Hárkamban.
Áramótaþankar.
Arið er víst liðið, en ég þakka það nú samt;
það var lítið hræðilegra’ en árin hin, sem liðu!
Ég minnist allra kvöldanna við hlátra’ og hundaskamt,
og hinumegin næturinnar timburmanna’ er biðu.
Já, árið þetta færði okkur bæði bros og tár:
bros á meyjarvanga’ og tár á flösku, sem ég þekki
Eins þægilegar veigar og Veigur nú í ár
og voru fyrir stríðið meðan kreppan þekktist ekki.
Þó skammdegið sé ömurlegt og skyggi’ á margra geð,
þær skipta með sér verkunum falda- og himinsólin.
Þótt Brandur geri verkfall og bílstjórarnir með,
þá bregða menn sér fótgangandi’ í apótek um jólin.
Með amerfskum hraða fer hér allt, sem fyrir ber,
alþingismenn kunnu’ að nota bæði hönd og fótinn;
(XI. 1.)
þingið, sem þeir byrjuðu í hittifyrra hér,
það hafði lokið skattstörfum og tolla- um áramótin.
^ . I
Árið færði’ oss gæði bæði nótt og nýtan dag,
á Norðurlandi, Vesturlandi, Austur-, Suðurlandi.
Kelirí og giftingar við gæða-meðallag,
gripdeildir og skepnuhöld í sæmilegu standi.
Það væri snubbótt kvæði, ef það endaði’ ekki’ í sorg,
slík ósköp vona ég að hendi þetta kvæði ekki.
Skammdegið það veitti okkur vínlaust kvöld á Borg,
og valdar stúlkur sýndu bæði mér og öðrum hrekki.
En síðust alls er vonin, því hún rekur lífsins lest
um Lækjargötu veraldar í Stjórnarráðið hæsta.
Því bið ég séra Árna og Bjarna og Friðrik prest
að biðja Hermann Iands vors þúsund gæða árið næsta.
z.
6