Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Page 21
„Jahá“, segjum vér, „þetta er ákaflega vanda-
samt“.
„Já, ekki verður því neitað. Það kostar ekki litla
fyrirhöfn. Maður hafði ekki mikið af þessu þarna
á Hvammstanga. En það vill til, að maður hefur
dálítið af þessu hérna“, bætir hann við, og bendir
á sig þar sem brjóstið á að vera.
„Eru þá gjaldeyrisvandræði eiginlega pund af
vandræðum, ha?“
„Pund af vandræðum, ha, ha, ha! Ég sagði þér
áðan, að það væri ekki pund af neinu, heldur bara
pund og þó ekki pund“.
„Já, skiljanlega. En hver á sök á þessum pund
. . . hérna . . . gjaldeyrisvandræðum?“
„íhaldið, maður! Hvernig er von að fari, þegar
íhaldið gengur í útlendum fötum og ekur í bílum
og brúkar klósettpappír, sem forfeðrum okkar
datt ekki í hug að brúka“.
„En ekur ekki Jónas líka í bíl, og það á luktar-
staura?“ leyfum vér oss að skjóta inn í.
„Uss, það er allt önnur sort af bíl“, segir Skúli.
„Það er ekki sama, hver á heldur“.
„Stendur heima“, segjum vér, „en hvernig á að
bæta úr þessu?“
„Það er nú það, sem við Eysteinn erum alltaf
að hugsa um, og ég held það gangi aldrei meðan
Ihaldið fær að leika lausum hala. Við erum að
vona, að Fiskimálanefnd geti eitthvað hjálpað,
hún er so ansvílli glúrin að hjálpa. Og svo hefur
hún líka svo lítið að gera, því helvízk úníónin er
alltaf búin að selja úr henni augun, áður en h'ún
veit af“.
„Jæja“, segjum vér. „Oss finnst nú hálfpartinn
eins og vér skiljum undan og ofan af þessu með
pundin og það allt saman, og munum birta eitt-
hvað um málið næstu daga“.
„Þó það væri nú, að eitthvað af svona fræðslu
gæti komizt inn í hausinn á ykkur. Brjótið þið nú
SPEGILINN vel um málið næstu daga og vertu
nú sæll“.
Og í sömu svipan var Skúli kominn á hausinn
í hlaðann í sömu stellingar sem fyrr. — Kvöddum
vér höfuðið á honum og fórum, stórum fróðari en
vér komum.
Kaaber SPEGILSINS.
Frelsi. (xi. 10.)
0! frelsi; ótal alda von,
okkar kalda lands Jón Sigurðsson.
Hvert á að stefna? Hvar er þín að leita?
Kannske þú sért í rollum upp til sveita?
Ó! frelsi; ertu þar?
Nei. — En hvar?
1
Ertu í hreysi öreiganna?
Ertu í höllum konunganna?
Ertu í Stranda æðarkollum?
eða presta bænarollum?
Almáttugur — ekki þar.
En hvar?
Ertu máske inni á þingi?
Ertu í norskum kjötsamningi?
Ertu í Davíðs ástarljóði?
Ertu í Kreppulánasjóði?
Abba labba — ekki þar.
En hvar?
Ertu kannske f kosningunum?
Kannske líka í vísindunum?
Ríkir þú í Einars öndum?
Ertu kannske í hjónaböndum?
Ussum sussum — ekki þar.
En hvar?
Ertu í því að eignast dropa?
Ertu í hverjum landasopa?
Ertu þá í dufli og dorg?
Dansar þú á Hótel Borg?
Oja bía — ekki þar.
En hvar?
Ertu í því að elta og sníkja?
Ertu í því að lofa og svíkja?
Ertu í því að fá sér fylli,
flokkanna að skjótast milli?
Ó! frelsi; ertu þar?
Já! reyndar.
í myndinni hans Magnúsar.
Laufi.
RAUÐKA — 3
17