Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Side 39
mr?
/%lbjálmiir Stefánsson
heimsækir Áiafoss.
'( $.6 böcn sbála
fyrir honum
/'i þorakalýni*
Fljótandi gistihús. (XI. 12.)
Um það leyti, sem hið góða skip „Queen Mary“
er að láta dást að sér í New York, er mikill undir-
búningur hafinn hjá oss til að vera ekki mikið
minni, og er nú verið að flikka „Esju“ upp í það
að verða fljótandi hótel, og er meiningin, að hún
vinni rauða bandið á leiðinni frá Reykjavík til
Glasgow. Er oss tjáð, að hið góða skip sé nú orðið
glæsilegt útlits; allt fínt og fágað og allar rottur
dauðar, eða að minnsta kosti í trance, og er það
vel farið, því að maður veit aldrei hverju þetta
kvenfólk, sem væntanlega verður meðal farþega,
getur fundið upp á af óhemjuskap. Vér viljum
vitanlega ekki halda því fram, að okkar góða skip
sé eins stórt og „Queen Mary“, og hefir kannske
ekki samskonar þægindi, þó mun kúaplássið á
„Esju“ mega notast sem tennisvöllur, og sund-
laugin er að minnsta kosti stærri, þar sem ekki er
annar vandinn en að binda spotta í þá farþega,
sem vilja fá sér sjóbað, og hafa þá á slefi eins
margar vikur sjávar og þeir óska. Á „Esju“ mun
einnig vera gott kælirúm, sem er tilvalið, ef ein-
hverjir farþegar eru um borð, sem þola ekki hit-
ann í Norðurhöfunum. — Lúðrasveit mun engin
vera í þessum Glasgow-ferðum, en vandað út-
varpstæki ætlum vér að muni finnast þar, og er
engu verra. Ennfremur munu spýjudallar hafa
verið endurnýjaðir, eða að minnsta kosti málaðir
rauðir, og er þá aðalatriðinu fullnægt, því að þeir,
sem þá nota, þurfa venjulega ekki önnur þægindi.
Yfirleitt teiknar útgerð þessi til að vera landi voru
til hins mesta sóma og uppgripa, því að ekki ef-
umst vér um, að landkynnir ferðaskrifstofunnar
hafi verið látinn semja bók þar sem sannað er, að
miklu færri menn farist af litlum farþegaskipum
en stórum, og benda á það, að litlar líkur séu til,
að annar eins mannskaði verði, þó að „Esja“
sökkvi, eins og t. d. þegar „Titanic“ rakst á jak-
ann, hérna um árið. Er nauðsynlegt að kveða nið-
ur fordóma þá, sem heimskir skemmtiferðalangar
hafa móti litlum skipum, og sanna þeim, að þau
séu að öllu leyti miklu betri. Mun „Esja“ þá jafn-
an fara stoppfull af farþegum milli Glasgow og
Reykjavíkur, ef þetta tekst, og ef oss tekst að
plokka Skotann svo nokkru nemi, verðum vér auk
þess frægsta þjóð í heimi.
Statourist SPEGILSINS.
35