Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Qupperneq 57
Ur sultar- og seyruannál.
Anno MCMXXXVI.
Þetta ár hófst með almennum votviðrum, hret-
um og hryssingi, til lands og sjávar. Neyttu marg-
ir heldri menn tækifæris til að leggja heila sína í
bleyti, að fornum sið, með þeim afleiðingum, að
þeir urðu enn vatnsbornari en áður voru þeir —
mátti því með sanni kalla þetta spilliblota. Flosn-
uðu margir upp af heilabúum sínum, er Kreppu-
lánasjóður var upp urinn. Sama landsstjórn við
sama orðstír. Um nýársleytið hélt Hermann hirð-
stjóri opinbera ræðu, og viðhafði þá nýbreytni að
tala upp á eigin ábyrgð — fannst mörgum mikið
til um slíkt ábyrgðarleysi, en ekkert upplýstist
nýtt í kjötsölumálinu. Hinn illkynjaði straum- og
skjálftafaraldur, er átti upptök sín í Skagafirði
norður, geisaði um landið og greip jafnt æðri sem
lægri, lærða sem leika; töluðu margir tveim tung-
um í senn, og var þetta því nefnt Deildartungu-
veiki. Urðu jafnvel sumir brjálaðir og ljóstuðu
upp leyndardómum hafsins við erlenda reyfara,
jafnt sem innlenda. Voru sumum þessara gerð
viðurlög stór, en aðrir útlægir gervir á Alþingi.
Var landsbartskeri sendur til höfuðs sýkli þeim,
er þessu fargani olli; tókst honum að ráða niður-
lögum hans og jók enn á frægð sína og vinsældir
meðal bartskerastéttarinnar. Loðinn Leppr enn á
Vínlandi. Sendi Hrossfeldur höfðingi Rauðskinna
sína legatos og bauð til tjalds síns. Voru þar
mjaðarkollur hneyfðar og friðarpípur kyntar. Sat
Loðinn þar of jólin og nam Hrossfeldur að honum
frumatriði stjórnarstarfa. Jókst lýðhylli Hross-
felds um allan helming við lærdóm þennan. Út-
koma Péturs Sigurðssonar úr Borgarfirði. Beiddu
valdsmenn hinn blessaða Guðbrand fyrirgefning-
ar á auðsýndum mótgerðum og brigðmælgi. Tók
Guðbrandur því ljúflega og var því næst oleaður
og balsameraður og vígður prófessorsvígslu hinni
minni. Kalla kennendur æðstu menntastofnunar
landsins sig síðan háskólakennara. Reisti Her-
mann hirðstjóri til danmerkur með CCC vaðmála.
Sagði hann konungi góðar fréttir af Islandi, ár-
gæzku til lands og sjávar og almenna velmegun.
Er þetta barst til eyrna Hörmangara og Hansa-
kaupmanna, gerðu þeir aðsúg að hirðstjóranum
og komst hann nauðuglega á skip sitt, og fékk
undið upp segl það, er enn var óveðsett dönskum.
Lenti hann í haívillum og braut skip sitt í Æðey.
Þriðja utanreisa Sigurðar Jónassonar til Vín-
lands. Á Alþingi flutti Jörundur goði nýmæli um
aukatekjur hreppstjóra. Þótti mörgum um sein-
an, er hann sjálfur hafði lent í hrakningum mikl-
um í hreppstjórn sinni, og haft af því mikla skap-
raun og tilkostnað. Hófdrykkjumenn stofnuðu á
þessu ári félagsskap, er í skírninni hlaut nafnið
Skeifan. Hafa litlar sögur síðan farið af skeifu
þessari og geta menn þess til, að hún hafi rétt sig
53