Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Side 71
Hallgrímskirkjan.
Ef einhver hefur haldið, að SPEGILLINN ætl-
aði alveg að leiða hjá sér hina stórmerku deilu,
sem staðið hefur undanfarið um Hallgrímskirkju-
líkan Guðjóns prófessors, þá er það alveg mis-
skilningur, heldur höfum vér viljað lofa öllum
hlutaðeigendum að rasa út og heimska sig eftir
mætti, hvort sem þeir nú heita Valtýr, Vigfús eða
Jónas. Það er eftirtakanlegt, að bæði vér og Guð-
jón þögðum, en það var af því, að vér vissum voru
viti og Guðjón sínu, þótt vér færum vel með það.
Myndin, sem hér fylgir, er í rauninni næg skýr-
ing, enda þótt vér látum nokkur vel valin orð
fylgja henni. Þeir, sem myndir hafa birt af kirkj-
unni, hafa sem sé gert þá kardínalvillu að stinga
henni á nasirnar, svo að það, sem Guðjón ætlaði
fyrir skrokk (,,skip“), verður turn, en sá rétti
turn að skrokk. í þessari stellingu telur Jónas
kirkjuna hið mesta listaverk — sem var honum
líkt —, Valtýr telur hana hneykslanlega, bara til
að hrella Guðjón, en Vigfús lýsir eftir krossinum,
sem hann kveðst þurfa að tilbiðja, en hefur leit-
(XII. 5.)
að að árangurslaust. Þegar vér nú höfum unnið
það þjóðþrifaverk að koma kirkjunni á réttan
kjöl, hyggjum vér að hafa gert alla ánægða. Jón-
as þarf ekki annað en leggjast á hliðina, þá er
kirkjan listaverk eftir sem áður, Valtýr getur
sagzt ekkert hafa meint með því, sem hann sagði,
og Vigfús fær krossinn sinn, eins og sjá má á
myndinni; og getum vér fyrirgefið Vigfúsi, þótt
hann fyndi hann ekki, meðan kirkjan stóð á hon-
um. En vér og Guðjón brosum brosi fagmannsins,
og látum eins og ekkert sé.
í sambandi við þetta mál viljum vér benda öll-
um húseigendum á arkítektadeild vora, sem mun
framvegis fremja vendingar á húsum manna fyr-
ir sanngjarnt verð. Oss telst svo til, að í Reykja-
vík einni sé hérumbil annaðhvort hús þannig vax-
ið, að það myndi stórskána, þó ekki væri gert ann-
að en bylta því á hliðina, auk heldur ef eitthvað
fleira væri lappað upp á það um leið.
Arkítekt SPEGILSINS
(akademiskur).
67