Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Síða 77
ösannindi
c
' wnferSárvmrdnkijsarasMi.
■ími
• CC, C
rf<
búnaS ttl slfks nutnings. Var
j7\i fpnginn <il aÖ flytja ketilsfMi
og ^notuðu - karlakórsmennirnir írA
Siglufiröi, Jónaa Jónsson, Eysteinn
^fónsson o. fl. tœkifœrið til aÖ fé
far með skipinu norður.
paö eru þyl hreinustu *ósann-
indi aö þessi íör Ægis norðui hafi
Snattíeröir varðskipanna.
(XII. 10.)
íhaldið hefur undanfarið ekki linnt látum að
prenta ýmsar reyfarasögur um það, að ríkisstjórn
SPEGILSINS hafi varðskipin í sífelldum snatt-
ferðum með gæðinga sína, í staðinn fyrir að láta
þau passa landhelgina. Er því tími til kominn, að
.almenningur fái að vita sannleikann í þessu máli,
ef ske kynni að hitt gæti valdið misskilningi við
kosningarnar. — Tökum þá fyrst norðurferðina,
sem verið er að fjargviðrast út af. I þeirri ferð
var hvorki Jónas, Eysteinn eða Þormóður aðal-
persónan, heldur soðketill einn mikill, sem ríkis-
verksmiðjurnar höfðu lagt upp á Sauðárkróki, til
þess að Sauðkræklingar skyldu halda, að þar ætti
að reisa síldarverksmiðju. Nú var búið að kjafta
því í þá, að þarna yrði engin verksmiðja reist, og
hafði ketillinn því þar ekkert að gera. Átti nú að
flytja hann til Raufarhafnar, og getur hver sem
vill sagt, að það hafi átt að vera kosningabeita,
þar sem Gísli er jú viss og verður það meðan
Norður-Þingeyingar trúa á það, sem fagurt er og
gott. Nú geta skip, sem sjálf hafa ketil, ekki
dregið katla, og var því ekki öðru til að dreifa en
Ægi, sem gengur fyrir mótorvél, og er svo sterk-
ur, að hann getur dregið heil ensk herskip út úr
inn er ekki alveg búinn enn. Og ætla þá að tala
um veðrið. Það hefur undanfarið verið ansvílli
gott, en allar horfur eru á því, að slyddan, sem
hann Björn spáði fyrir 5 vikum, og ekki er komin
enn, komi ekki fyrr en um sumarmál, en sennilega
hefur hún lent í loftvægislægð fyrir suðvestan
Geirfuglasker og tafizt svona. Annars spá þeir
nokkuð vel á Veðurstofunni, að minnsta kosti er
vel að marka tímaritið, sem þeir gefa út og kalla
Veðráttuna. Æ, það var satt . . . haldið þið ekki,
að ég hafi ætlað að gleyma aðalefninu, sem ég
ætlaði að koma með í þetta sinn, af því að líklega
er það heldur stutt í sérstakan fyrirlestur eða
grein, nema með svo miklu utan um. Það er vísan.
Þið kunnið hana nú auðvitað utanbókar öllsömun,
og þessvegna ætla ég að fara með fyrripartinn,
sem átti að prjóna við. Hann er svona:
Á skokki læt ég skáldjálk
skarka í útvarpinu.
Þið sjáið strax, að hér eru engir hundslappa-
stuðlar á ferðinni, og er ég þó bara Húnvetningur
en enginn Skagfirðingur. Mér hafa borizt einir
200 botnar, en rúmsins vegna ætla ég bara að
hafa yfir einn, af því hann er beztur og hefur á
sér svip Framsóknarflokksins. Hann er svona:
Dragðu úr öðru auga bjálk,
en flísina úr hinu.
Jæja, tíminn er nú á enda.
Góða nótt.
Aðaljón SPEGILSINS.
RAUÐKA
10
73