Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Blaðsíða 100
'Jásendaftmauí1 í
Véstftarai&eyjum.
Eyjaíerð (XIII. 2.-8.)
Í7r endurminningum stjórnmálamanns.
Mönnum er það kannske ekki almennt kunnugt,
en samt er það nú svona, að við Framsóknarmenn
höfum um langan aldur átt mikil ítök í Vest-
mannaeyjum, þó við höfum farið vel með það, og
látið okkur nægja að vinna í kyrrþei, og sérstak-
lega gætt þess vel, að liggja lágt um allar kosn-
ingar, svo engan grunaði neitt, því það hefur allt-
af verið okkar sterka hlið að þekkja okkar vitjun-
artíma og ekki hamra fyrr en járnið hefur verið
orðið nokkuð heitt. En á árinu, sem fyrir skömmu
var að stinga af, var þróunin komin svo langt
áleiðis, að þeim innfæddu í Eyjum þótti við svo
búið ekki mega standa, að ekki væri boðinn fram
listi, og ég því beðinn að koma og líta á hann og
fénaðinn yfirleitt, og helzt skrifa um það svo sem
eitt bindi af „komandi árum“, ef mér litist það
þess vert. Ég vissi fyrirfram, að við eigum þarna
ein 80 atkvæði, sem geta verið sigurvænleg við
kosningar, ef maður hefur vit á að drýgja þau
með íhaldi og kannske einhverju af bolsum líka,
og bjóst því skjótt til ferðar. En ekki var ferðin
fyrr ákveðin en Eysteinn vildi óður og uppvægur
fara líka; lét hann öllum illum látum og benti á,
96