Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Page 104
Pólitísk misnotkun barna
Ilialeíiö æsir npp 11—16 ára bóni og' ætlar að
, . I'
nota þau ser til íramdráttar 1 kosningumuu. .
Svar: Ja, ekki annað en það, að nafni rainn í
útvarpinu kom með sögu um daginn, sem sannar
það þerlega, að skatan sé nú flutt austur í Skafta-
fellssýslu, sennilega af pólitískum ástæðum, og sé
þetta íhaldsskata, sem er eitthvað lítið um séra
Sveinbjörn og flytur sig því í kjördæmi Gísla.
Væri vert að hafa gætur á ferðum hennar, ef
breytingar yrðu á þingmönnum um næstu kosn-
ingar, og væri gaman að sjá, hvað hún gerir,
þegar allt landið er orðið rautt.
Ung blómarós spyr: „Hvað á ég að gera til þess
að verða ekki feit? Ég er 19 ára og 80 kíló.“
Svar: Ég hef borið þetta undir nokkra lækna,
og kemur hér summan og meðaltalið af því, sem
þeir hafa sagt mér. Þér skuluð ekkert borða nema
epli og banana, og sérstaklega skuluð þér forðast
hafragrauta og kartöflur. Fyrst skuluð þér svelta
yður alfarið 1 40 daga og 40 nætur, og svo taka til
við ávextina. Ef þér bregðið ekki út af þessu, skal
ég fullvissa yður um, að þér verðið laus við allar
áhyggjur af þessu, eftir svo sem hálft ár.
Kjósandi spyr: „Hvaða lista á ég að kjósa við
bæj arst j órnarkosningarnar ?“
Svar: Mér er óheimilt, vegna hlutleysisins, að
gefa neinar ráðleggingar, en hitt er mér ekkert
launungarmál, að ég kýs B-listann. Þér ráðið,
hvað þér gerið.
Aðaljón.
100