Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1944, Síða 139
flokkurinn bara skipti um lit.
Af heiftum berst um bita og völd
á banaspjótum Stalins öld.
Magnast upplausn, svik og svall,
svívirðing og leynibrall,
drykkja víns og fljóðafar,
fjölga sögur kiljanskar.
Mun því, Island, mesta von,
þú munir Jónas Þorbergsson.
Læpuskaps ódyggðir aukast í landi.
Eysteinn er sláandi dæmi upp á það,
flækjandi ríkið í fjárþrotastandi
hjá fjármálajúðum í Lundúnastað.
Oreiga reiturnar Hambro má hirða:
Héðinn og Einar og Stefán Jóhann,
með Haraldi í skuldina verður að
virða
og Vigfús og Guðbrand og Norð-
fjarðarmann
Bolsar fleka fólk, og taka
fylgið hrjáð, sem Kratar áður
þóttust eiga, og ekki óttast
eld né voða úr Stalins veldi.
Kratar biðja Framsókn friðar,
finnst það mein, ef tapast beinin,
eykst þeim kvíði, ef óvænt þíðir
íhald frosið hægrabrosið.
V.
Þú fátæka Iandið, sem lifibrauð
veitir,
landið, sem fóstraðir Hjörvar og
Jón,
landið með fáráðar Framsóknar-
sveitir,
er fæddir upp Skúla og þvíumlík
flón.
Undarlegt sambland af öreigaliði,
íhaldi, Framsókn og Nazistahjörð,
hvar Aðalbjörg trónar í eilífum
friði
og alþýðan tínir þau kiljönsku
spörð.
Landið með kjarkþrota Krata á
verði,
kúgaða og þjáða af Bolsanna magt.
Og Hermann, sem „Kerúb með
sveipanda sverði“,
setjandi Kveldúlf f ríkisins agt.
Vínið í skipsförmum flyzt inn í
landið,
fyllirí æsist á sérhverjum stað.
Fátt mun nú Sigfúsi finnast um
standið
og Felix má grátklökkur horfa á
það.
Þú megnar ei börn þín frá Bolsum
að vara
og Bretanum stórmikið skuldarðu
hjá,
heldur en útlenda áþján í fara,
ættarland, skaltu nú hníga í sjá.
VI.
NIÐURLAG.
Fer að uggur. Fýkur á glugga.
Fólkið hrjáð, en vitrir smáðir.
Kallast ráða Kollubani.
Kommúnistar þingið gista.
Ekki er tryggt: Við fjármál fiktar
fávís krakki, en Júðar hlakka,
heimta drýldnir skil á skuldum.
Skattar þyngjast, léttist pyngjan.
Allt er í brotum. íhald þrotið
allri dáð og verður að háði.
Feigur brokkar Bændaflokkur.
Bíða í næði Görings hræður.
Nafni kasta Kommúnistar,
klæðast gæru og bíða færis,
messur syngja sameiningar,
sækja eld í Rússaveldi.
SLÆMUR.
Skyldi að lokum líða að
lokið sé Hermanns ráðum,
Auga-Steini útskúfað
og öðrum líkum snáðum.
Ráði ættlands rögn,
yfirtaki útvarpsróm,
ýmsu drepi í þögn.
Siðleysinu setji dóm,
sakar prófi gögn.
Fósturjarðar fylgjurnar
forði öllu grandi,
svo að rússneskt réttarfar
rekið verði úr landi.
íslands unga þjóð!
auðnu þinnar ættjarðar
áttu að verja af móð,
falsi og lygum Framsóknar
fleygja á heita glóð.
Sárt er að verða að sjá á það
sér í málin blanda,
Ásgeir, sem að enginn bað
Útvegsbankann klanda.
Nær mun íhalds afl
geta rétt á greiðslunum,
að gjaldist eitthvert hrafl,
svo verði úr skulda vöfunum
von um útúrkrafl.
C. X.
135
L