Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Page 5
Hagsmunasigrar alþýðunnar á árunum
1946—1948
Verkalýðssamtökia framkvæma samþykktir 19. þingslns
Á 19. þingi Alþýðusambandsins haustið 1946 var m. a. samþykkt
eftirfarandi:
í kjaramálum verkalýðsins:
„19. þing Alþýðusambands íslands telur nauðsynlegt, að haldið
verði áfram á sömu braut f baráttunni fyrir bættum launakjörum
verkalýðsins, o. s. frv.
----Kostað verði kapps um að fá fram sanngjarna leiðréttingu á
dýrtíðarvísitölunni og spyrnt gegn hvers konar tilraunum til að
skerða frekar en orðið er hag launþega í sambandi við útreikning
hennar.
----Áfram verði haldið að samræma kaupgjald o. s. frv.
----Þingið leggur til, að verkalýðsfélögin segi upp gildandi sild-
veiðisamningum með það fyrir augum að samræma kjörin algerlega
og hækka kauptrygginguna o. s. frv.“
Ríkisstjómln hafnar samvinnu
í fullu samræmi við samþykktir 19. sambandsþingsins sagði Verka-
mannafélagið Dagsbrún upp samningum sínum i fyrra vor og setti
fram kröfur um kauphækkun til að mæta dýrtiðaraukningunni af
völdum tollalaganna.
Ríkisstjórnin hafði í stefnuskrárræðu lýst þvi yfir, að hún myndi
hafa samráð við verkalýðssamtökin um lausn dýrtiðarvandamáls-
ins. í samræmi við þessa yfirlýsingu leituðu fulltrúar Dagsbrúnar
samkomulags og samstarfs við ríkisstjórnina um lausn dýrtíðarmál-
anna, áður en til uppsagnar á samningum kom. Ríkisstjórnin taldi
sig þá engar yfirlýsingar eða tryggingar geta gefið fyrir þvi, að kjör
verkalýðsins yrðu ekki rýrð.
Eftir um það bil mánaðarverkfall náði Dagsbrún fram grunnkaups-
hækkun, er nam frá kr. 0,15 til kr. 0,40 á klst.
5