Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Blaðsíða 101
iðnréttindi i iðn þessari, skal vera kr. 3.10 á klst. Eftirvinna greiðist
með 50% álagi og nætur- og helgidagavinna með 100% álagi á dag-
vinnukaup fyrir þá vinnu, sem í samningi þessum greinir. Samning-
ur þessi gildir frá 1. marz.
Sjómannafélag Akureyrar semur um kjör háseta á botnvörpu-
skipum
Hinn 14. marz var undirritaður samningur milli Sjómannafélags
Akureyrar og Útgerðarmannafélags Akureyrar um kaup og kjör há-
seta og matsveina á skipum allt að 200 smál., sem stunda fiskveiðar
með botnvörpu og salta um borð.
Um þessa vinnu hafa áður engir samningar verið til milli útgerðar-
manna og sjómanna á Akureyri. Aðalákvæði samningsins eru þessi:
Af heildarafla skipsins greiðist skipverjum, eins og hér segi:
1. Skip undir 40 smál. 39% í 9 staði með 9 mönnum, en 40% i 10
staði með 10 mönnum.
2. Skip 40—55 smál. 39% í 10 staði með 10 mönnum, en 40% 1 11
staði með 11 mönnum.
3. Skip 55—70 smál. 39% í 11 staði með 11 mönnum, en 40% í 12
staði með 12 mönnum.
4. Skip 70—100 smál. 39% f 12 staði með 12 mönnum, en 40% í 13
staði með 13 mönnum.
5. Skip 100—300 smál. 39% í 13 staði með 13 mönnum, en 40% í 14
staði með 14 mönnum.
6. Skip 130—160 smál. 39% i 15 staði með 15 mönnum, en 40% i 16
staði með 16 mönnum.
7. Skip 160—200 smál. 39% í 17 staði með 17 mönnum, en 40% í 18
staði með 18 mönnum.
Aldrei skal skipt í fleiri staði, en skipverjar eru í hverri veiðiferð.
— Matsveinar skulu fá I14 hásetahlut.
Útgerðarmaður greiði hverjum háseta í lok hvers mánaðar lág-
markskaup upp í hundraðshluta af afla hans frá og með lögskráning-
ardegi til og með afskráningardags kr. 580.00, fyrir hverja 30 daga,
auk verðlagsuppbótar. Matsveinar fái lágmarkskaup er nemur kr.
725.00 á mánuði auk verðlagsuppbótar.
101