Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Blaðsíða 37
skerðingu o. £1. af því tagi, til lausnar vandamálunum, bárust sam-
bandsstjórn frá ýmsum félögum af suðvesturhluta landsins fregnir af
því, að tvö sambandsfélög vor á þessu svæði hefðu sent út bréf til
sambandsfélaga utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, þar sem boðuð
var stofnun svonefnds Alþýðusambands Suðurlands. Félög þessi voru
Verkalýðsfélag Akraness og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur.
Þetta vakti að vonum nokkra furðu f sambandsstjórn, því aldrei
hafði áður verið stofnað fjórðungssamband nema f nánu samráði
við sambandsstjórn og sambandsþing, en nú fréttir sambandsstjórn
þetta eins og af tilviljun, frá sambandsfélögum er boðuð höfðu verið
á stofnþing.
Þessi óupplitsdjarfa framkoma fékk þó sfna skýringu þegar að var
gætt, en skýringin lá f fyrirhuguðu skipulagi svonefnds A.S.S.
51. gr. laga Alþýðusambands íslands hljóðar svo:
„Heimilt er sambandsfélögum í sama landsfjórðungi að mynda
fjórðungssamband i þeim tilgangi að efla og samrœma starfsemi fé-
laganna i fjórðunginum.
Fjórðungssamböndin setja sér sjdlf lög, en staðfest skulu þau af
miðstjórn Alþýðusambandsins.
Þar sem fjórðungssamband starfar, skal i/a hluti skatts þess, sem
félögin eiga að greiða til sambandssjóðs falla til fjórðungsssambands-
ins.
Fjórðungssamböndum er skylt að senda miðstjórn ársreikninga
sina til athugunar, enda bera fjórðungssamböndin ábyrgð á fjárreið-
um sinum gagnvart sambandsstjórn og sambandsþingi."
A.S.S. skyldi aðeins ná til sambandsfélaga utan Reykjavikur og
Hafnarfjarðar. Sem sagt: Sterkustu félögin, sem rutt hafa brautina f
hagsmunabaráttunni f fjórðungnum, skyldu klofin frá.
Ekkert þeirra fjórðungssambanda, er starfað hafa innan A.S.Í. hafa
haft slíkt útilokunarákvæði í lögum sínum.
2. gr. laga Alþýðusambands Norðurlands hljóðar svo:
„Starfssvœði sambandsins er: Strandasýsla, Vestur-FJúnavatnssýsla,
Aaustur-Húnavatnssýsla, Skagafjarðarsýsla, Siglufjarðarkauþstaður,
Eyjafjarðarsýsla, Ólafsfjarðarkaupstaður, Akureyrarkaupstaður, Suð-
ur-Þingeyjarsýsla og Norður-Þingeyjarsýsla."
2. gr. f lögum Alþýðusamands Austfjarða hljóðar svo:
37