Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Page 26
Á næsta degi birtir Alþýðublaðið forystugrein um þetta sama efni
undir fyrirsögninni „Lævíslegasta tilræðið" og endurtekur þar hróp-
yrðin um stöðvun alls fiskiflotans „allsherjarverkfall í þeim tilgangi
að steypa rikisstjórninni"! Einhver fleiri blöð hafa endursagt þessa
rosafrétt.
Hið voðalega bréf o. fL
Alþýðublaðið vildi svo vera láta i laugardagsgrein sinni að vitn-
eskjan um þetta „voðabréf" hefði borizt því af einhverri tilviljun. —
En sama daginn sem vér höfðum tilkynnt að vér myndum leggja
plöggin opinberlega á borðið í þessu máli, þriðjudaginn 7. sept.,
birtir Alþýðublaðið einnig þau bréf, er farið höfðu á milli Alþýðu-
sambandsins og I.T.F. s.l. vetur. En þau fara hér á eftir:
Comrades, if our Trade Unions would be in need of your assistance,
in case of strikes here in Iceland, would your organisation be able
and willing, if need be, to stop Icelandic fishingboats and trawlers in
English ports? It might be of great importance to us if we could rely
on your help in such cases. Certainly we w'ould not ask for your
assistance witbout reasons.
I hope you will answer as soon as possible.
Witli fraternal greetings.
A íslenzku:
„2. des. 19-17.
Fclagar, f því tilfelli, að verkalýðsfélög hér hefðu þörf fyrir aðstoð
yðar i verkföllum hér á íslandi, mundu samtök yðar vera fær um og
fáanleg til að stöðva islenzka fiskibáta og togara í enskum höfnum?
Það gæti verið mjög þýðingarmikið fyrir okkur, ef við gætum reitt
okkur á aðstoð yðar í slíkum tilfellum. Auðvitað myndum við ekki
fara fram á aöstoð yðar án ástæðu."
Svar I.TJ’.
Til frckari fróðleiks fara svarbréf I.T.F. hér á eftir.
26