Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Blaðsíða 85
sem ákveður örlög tugþúsuntla vinnandi manna með þjóð vorri
um ófyrirsjáanlega framtíð.
En örlagaspurningin, sem þessir fulltrúar eiga að svara, er þessi:
Skal Alþýðusamband íslands nú, á skeiði mestu árangra og mestu
eflingar, sem það á 30 ára ævi sinni hefur náð, afhent andstæðing-
unum til algerrar tortímingar sem hagsmuna tæki verkalýðsins cða
skal því enn mörkuð braut sameiningar og sóknar til bjartara og
betra lffs fyrir hina vinnandi þjóð íslands.
K j arasamningar
sem gerðir hafa verið á tímabilinu milli þinga
Eftir sambandsþing 1946:
Nýr kjarasamningur Snótar í Vestmannaeyjum
Þann 30. sept. var undirritaður kjarasamningur milli Verkakvenna-
félagsins Snótar og Netagerðar Vestmannaeyja h. f. Áður var enginn
samningur til um þessa vinnu og er þetta fyrsti samningur, sem
Snót gerir um kjör verksmiðjustúlkna, enda lítið um iðnað í Eyjum.
Samkvæmt samningnum er kaup stúlkna, er vinna í veiðarfæraverk-
smiðju Netagerðar Vestmannaeyja, sem hér segir: Byrjunarlaun kr.
190,00 á mán. (var kr. 150,00), eftir 3 mánuði kr. 290,00 á mán. (var
kr. 275,00 og hækkaði ekki úr því) og eftir 12 mánuði kr. 310,00 á
mánuði. Á kaupið kemur full verðlagsuppbót. Samningurinn gildir
til 1. okt. 1947 og er uppsagnarfrestur þrír mánuðir.
Nýr kjarasamningur í Ólafsvík
l’ann 6. des. var undirritaður nýr kjarasamningur milli Verkalýðs-
félagsins Jökuls í Ólafsvík og atvinnurekenda. Samkvæmt þessum
samningi hækkaði grunnkaup karlmanna f almennri dagvinnu úr
kr. 2.10 í kr. 2,45 á klst. Grunnkaup í almennri skipavinnu hækkaði
úr kr. 2,40 í kr. 2,80 á klst., en skipavinna við kol, salt og sement er
greidd með kr. 3,00 á klst. Grunnkaup kvenna hækkaði úr kr. 1,50 í
85