Skýrsla miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um starf sambandsins 1946-1948 - 14.11.1948, Blaðsíða 65
þorra fólks, sem annars hefði viljað nota frítíma sinn á þennan
hátt.
Heimavistarskólar sveitanna eru því nær einu stofnanirnar, sem
hægt hefur verið að nota i þessum tilgangi, enda hefur aðsókn að þeim
verið miklu meiri en móttökugeta.
Með gildistöku orlofslaganna 1943 jókst þörfin fyrir slík heimili um
allan helming, þar sem ákveðið er, að hver launþegi skuli hafa 12
daga orlof á ári. Það má segja, að nokkuð skiptist i tvö horn um
það, hvernig orlofshafar vilja nota þennan tíma. Margt af hinu yngra
fólki vill ferðast um landið án þess að hafa langar viðdvalir á sama
stað. Aftur á móti vill fjöldi af hinum eldri verkamönnum dvelja
mest allan leyfistímann á sama stað, sér hvíldar og hressingar.
Sum verkalýðsfélög hafa þegar byrjað að skipuleggja slikar orlofs-
ferðir á hinn myndarlegasta hátt, en orðið að takmarka þá starf-
semi mjög, vegna skorts á gisti- og dvalarheimilum, og má þar með
segja, að fjöldi orlofshafa sé því nær útilokaður frá því að geta notað
frítíma sinn eins og æskilegt væri.
En samhliða þessari þörf má svo benda á æskulýðsfélagsskap sveit-
anna — ungmennafélögin —, sem flest eiga mjög erfitt með að full-
nægja þörf sinni fyrir samkomuhús til félagsstarfsemi sinnar. Er
þar þó um stórmikið menningarmál að ræða, sem leysa þarf svo að
viðunandi sé.
Á slðasta Alþingi var flutt frv. um orlofsheimili, sem ekki varð út-
rætt. Nú er flutningsmönnum það ljóst, að hér er um hliðstæður að
ræða, sem í allmörgum tilfellum má leysa með sameiginlegu átaki.
Starf ungmennafélaganna er aðallega vetrarstarf, en aftur á móti
þurfa verklýðsfélögin ekki að nota húsin nema yfir sumarið, mcðan
orlofstiminn stendur yfir. Það er því álit flutningsmanna, að rétt sé
aðstuðla að samvinnu milli þessara félagssamtaka, þar sem því verð-
ur við komið.
Þó mun ekki rétt, að binda hina opinberu aðstoð neinum skilyrð-
um um slíka samvinnu, því að i fyrsta lagi mun ekki vera hægt að
koma henni við alls staðar, og að i öðru lagi þýðingarlaust að ætla
að þvinga hana fram, ef félagslegur skilningur er ekki fyrir hendi.
Hins vegar þykir rétt að ýta fremur undir byggingu þeirra heimila,
er samvinna tekst um, bæði til að örva samstarfsviljann og nota féð
65
5